fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026

Ert þú að nota snyrtivörur sem eru ekki öruggar fyrir heilbrigði þitt?

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 14. ágúst 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

38% snyrtivara frá löndum utan EES uppfylla ekki fyllilega skilyrði sameiginlegrar EES löggjafar

Umhverfisstofnun stóð nýlega fyrir eftirliti með húðsnyrtivörum sem upprunnar eru frá löndum utan EES. Farið var til 9 birgja sem eru umsvifamiklir í þeim innflutningi og voru alls 32 vörur skoðaðar.  12 vörur eða 38% reyndust ekki uppfylla alfarið skilyrði EES löggjafar. Af þeim voru 10 ekki skráðar í vefgáttina og þar af vantaði að tilgreina ábyrgðaraðila á umbúðum fyrir 6 vörur. Tvær vörur skorti upplýsingar um ábyrgðaraðila á umbúðum en þær vörur voru skráðar í gáttina. Jafnframt var athugað hvort vörurnar innihéldu óleyfileg innihaldsefni  en svo reyndist ekki vera. Gerðar voru athugasemdir við vörur frá 5 birgjum og þeim veittur frestur til að gera fullnægjandi úrbætur. Nánar má lesa eftirlitið á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Eftirlit þetta staðfestir að ekki er vanþörf á því að birgjar hugi að því að snyrtivörur sem þeir markaðssetja og upprunnar eru í löndum utan Evrópu standist örugglega kröfur sem settar eru innan EES.

Sameiginleg löggjöf landa á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) hefur það markmið að tryggja að snyrtivörur sem boðnar eru fram á markaði séu öruggar fyrir heilbrigði manna við eðlileg notkunarskilyrði. Áður en snyrtivara er markaðssett á EES skal tilnefna ábyrgðaraðila innan þess, sem meðal annars hefur þá skyldu að:

  • skrá vöruna ásamt upplýsingum um hana í snyrtivöruvefgátt ESB (CPNP).
  • láta setja saman og hafa í fórum sínum vöruupplýsingaskjal sem m.a. inniheldur öryggismat fyrir vöruna.
  • tryggja að merkingar á vörunni uppfylli reglur, þar á meðal að upplýsingar um ábyrgðaraðila komi fram á umbúðum.

Mikilvægt er að þeir sem setja á markað snyrtivörur hérlendis tryggi að vörurnar uppfylli ofangreindar kröfur, en einkum þarf að hafa þetta í huga þegar fluttar eru inn snyrtivörur sem upprunnar eru frá löndum utan EES, þar sem aðrar reglur gilda um markaðssetningu þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum
Brotist inn í kirkju
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Banvænn misskilningur kom upp um hið sanna eðli lögreglumannsins

Banvænn misskilningur kom upp um hið sanna eðli lögreglumannsins
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Góð frammistaða Íslands gegn Evrópumeisturunum dugði ekki til

Góð frammistaða Íslands gegn Evrópumeisturunum dugði ekki til
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um
Eyjan
Fyrir 21 klukkutímum

Eyjólfur Ármannsson: Þurfum meiri strandsiglingar – fellum bara niður ETS gjöldin

Eyjólfur Ármannsson: Þurfum meiri strandsiglingar – fellum bara niður ETS gjöldin
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun
Pressan
Í gær

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump
Fréttir
Í gær

Slasaður einstaklingur sóttur í Davíðsgjá á Þingvöllum

Slasaður einstaklingur sóttur í Davíðsgjá á Þingvöllum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.