

Nú styttist óðum í að tónleikar rokksveitarinnar Guns N’ Roses hefjist á Laugardalsvelli en völlurinn opnar klukkan 16:30. Þeir allra hörðustu ætla hins vegar ekki að missa af neinu og voru mættir í röð klukkan sex í morgun.
Reiknað er með yfir 25 þúsund manns á tónleikana sem hefjast þegar íslenska rokksveitin Brain Police stígur á stokk klukkan korter yfir fimm. Klukkutíma síðar spilar hljómsveitin Tyler Bryand & the Shakedowns fyrir gesti. Veislan nær svo hámarki um átta í kvöld þegar Guns N’ Roses tekur sviðið.
https://www.facebook.com/showIceland/photos/a.141292320050934.1073741828.140911590089007/212059769640855/?type=1&theater