

Fimmtán ára starfsmaður Gámaþjónustu Norðurlands varð fyrir vinnuslysi þegar hann lenti ofan í pressugám á mótökusvæðinu við Réttarhvamm á Akureyri. Þetta kemur fram í frétt á vef Vinnueftirlitsins.
Við eftirlitsheimsókn Vinnueftirlitsins hjá fyrirtækinu kom í ljós að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi starfsmanna var ekki í samræmi við lög og reglur.
Stofnunin hefur nú bannað fyrirtækinu að láta unglinga vinna með hættuleg efni, bera þungar byrðar og starfa án handleiðslu fullorðinna starfsmanna. Þá hefur öll vinna barna og unglinga undir átján ára við pressugáma verið bönnuð.