fbpx
Mánudagur 14.júlí 2025
Eyjan

Sævar Freyr ráðinn bæjarstjóri Akraness

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 14. mars 2017 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sævar Freyr Þráinsson hefur verið ráðinn bæjarstjóri á Akranesi og tekur við starfinu af Regínu Ásvaldsdóttur sem var nýlega ráðin sviðsstjóri velfrerðarsviðs Reykjavíkurborgar. Tekur hann við starfinu í dag. Sævar Freyr hefur verið forstjóri 365 miðla frá árinu 2014 en tilkynnt var í Kauphöllinni í morgun að Vodafone hefði gengið frá samkomulagi um kaup á rekstri ljósvaka- og fjarskipta­ rekstri 365 ásamt starfsemi Vísis.is.

Sævar er viðskiptafræðingur að mennt og hefur langa og farsæla reynslu af stjórnun. Hann starfaði sem forstöðumaður og framkvæmdastjóri hjá Símanum um margra ára skeið þar sem hann bar meðal annars ábyrgð á þróun, sölu, markaðsmálum, vörustjórnun, viðskiptastýringu og gagnalausnum. Hann varð forstjóri Símans árið 2007 og gegndi því starfi þar til hann tók við forstjórastöðu hjá 365 miðlum. Sævar á sæti í framkvæmdastjórn viðskiptaráðs og hefur gengt stjórnarformennsku meðal annars hjá fyrirtækjunum Sensa og On-Waves og átt sæti í stjórnum fjölmargra fyrirtækja sem tengjast fjarskiptamálum og hugbúnaði. Sævar Freyr hefur tekið með virkum hætti þátt í samfélags- og menningarmálum á Akranesi en hann er varaformaður knattspyrnufélags Íþróttabandalags Akraness, varaformaður Vesturlandsvaktarinnar sem eru hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og stjórnarmaður í góðgerðarfélaginu, Club 71. Þá hefur hann átt sæti í atvinnumálanefnd kaupstaðarins og í stjórn Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt