fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Eyjan

Píratinn Viktor Orri biðst afsökunar: „Álagið hefur verið mikið“

Ari Brynjólfsson
Föstudaginn 3. mars 2017 19:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viktor Orri Valgarðsson varaþingmaður Pírata.

Viktor Orri Valgarðsson sitjandi vara þingmaður Pírata biður Agnar Kristján Þorsteinsson afsökunar á ummælum sem hann lét falla í umræðum um áfengisfrumvarpið í vikunni. Agnar Kristján gagnrýndi frumvarpið harðlega á Fésbók og gaf í skyn að þingmenn sem styddu frumvarpið, þar á meðal Viktor Orri, væru að vinna fyrir stórfyrirtæki en ekki almenning. Viktor Orri brást ókvæða við og upphófust þá harðar umræður þar sem Viktor sagði meðal annars:

„Ég fylgi sannfæringu minni á þingi eins og ég hef alltaf gert áður en ég sat á þingi, og þú mátt bara fokking fokka þér fyrir að fullyrða gegn betri vitund að ég sé að gera það vegna þess að ég sé á launum hjá hagsmunaaðilum, eða ofurseldur einhverri upphefð. Og já, ég má segja hrokafullum dónum að fokka sér þó ég sé á þingi. Deal with it.“

Viktor Orri hefur verið ötull talsmaður frumvarpsins umdeilda og tekið þátt í fjölda umræðna á samfélagsmiðlum vegna málsins. Líkt og Eyjan greindi fyrst frá í gær hverfur Viktor Orri af þingi á mánudaginn þegar Gunnar Hrafn Jónsson snýr aftur úr veikindaleyfi. Í færslu á Fésbók biður Viktor Orri Agnar afsökunar:

Vil biðjast afsökunar á því sem ég sagði við Agnar Kristján Þorsteinsson um daginn. Álagið hefur verið mikið og tilfinningahitinn talsverður undanfarið og ég fór einfaldlega fram úr mér,

segir Viktor Orri og bætir við:

Ég fer út fyrir mitt eigið velsæmi þegar ég nota svona orðalag í umræðunni, óháð því hvort ég er á þingi eða ekki, og sé eftir því að hafa brugðist svona við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Flýr Ásdís Kristjánsdóttir Kópavog eins og Rósa Guðbjartsdóttir flúði úr bæjarstjórn Hafnarfjarðar?

Orðið á götunni: Flýr Ásdís Kristjánsdóttir Kópavog eins og Rósa Guðbjartsdóttir flúði úr bæjarstjórn Hafnarfjarðar?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ragnar Þór Ingólfsson: Grímulaus sérhagsmunagæsla stjórnarandstöðunnar – trúnaðarupplýsingum deilt með hagsmunaaðilum

Ragnar Þór Ingólfsson: Grímulaus sérhagsmunagæsla stjórnarandstöðunnar – trúnaðarupplýsingum deilt með hagsmunaaðilum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins