
Nefnd Evrópuráðsins gegn kynþáttafordómum (ECRI) hefur gefið frá sér skýrslu um Ísland og er það í fimmta skipti sem það er gert. Þar koma fram áhyggjur af sjónvarpsstöðinni Omega og útvarpsstöðinni Útvarpi Sögu og þeim boðskap sem þar er borinn fram. Einnig lýsir nefndin yfir áhyggjum sínum vegna umræðu Íslendinga á netinu, sérstaklega hvað varðar hinsegin fólk. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Nýjustu skýrsluna og hinar fjórar fyrri má finna hér á vefsíðu Evrópuráðsins.
Í skýrslunni segir meðal annars:
ECRI tekur eftir því að einkarekna sjónvarpsstöðin Omega, sem nefnd er í fjórðu skýrslunni, heldur áfram að gefa sig að hatursorðræðu gegn múslimum.
Auk þess er Útvarp Saga nefnd í skýrslunni og tekið fram að ECRI hafi áhyggjur af því að þar sé dreift hatursorðræðu um hinsegin fólk, innflytjendur og múslima.
En það eru ekki bara Omega og Útvarp Saga sem fá á baukinn, heldur er einnig fjallað um orðræðu Íslendinga á netinu sem sögð er vera á stundum hatursfull. Í aðdraganda sveitarstjórnakosninganna í júní 2014 segir nefndin að umræðan hafi verið óvægin í garð múslima, einkum af hálfu lista Framsóknar og flugvallavina í Reykjavík.
Framsóknarflokkurinn gerði andstöðu við moskuna og múslima almennt að sínu helsta baráttumáli og fulltrúi flokksins í borgarstjóraembætti Reykjavíkur tilkynnti að hún myndi afturkalla ákvörðunina um að úthluta landi undir byggingu moskunnar,
segir í skýrslunni.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, fær einnig á baukinn fyrir ummæli sín á Facebook síðu sinni þar sem hann spurði hvort að Íslendingar væru öruggir gagnvart hryðjuverkum. Þar lagði hann til að þeir 1500 múslimar sem þá bjuggu hér á landi yrðu sérstaklega rannsakaðir með tilliti til þess hvort þeir hefðu tengsl við hryðjuverkahópa. Þessi ummæli eru sögð fordómafull.