fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Eyjan

Vildu ekki fiskvinnslu Finnbjarnar ÍS

Ritstjórn Eyjunnar
Laugardaginn 29. apríl 2017 17:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hreppsnefnd Súðavíkur vildi ekki úthluta útgerð Finnbjarnar ÍS 68 auknum byggðakvóta á síðasta fiskveiðiári. Fyrirtækið Lífsbjörg ehf sem á og rekur bátinn áformaði að setja upp fiskvinnslu í Súðavík og voru að sögn Halldórs Magnússonar, útgerðarmanns  aðilar sem hefðu lagt fyrirtækinu lið við þá uppbyggingu. Finnbjörn ÍS 68 veiddi um 1200 tonn á fiskveiðiárinu, einkum á snurvoð. Þar af nærri 900 tonn af þorski. Gert var út á leigukvóta og var afkoman engu að síður góð á árinu.  Finnbjörn ÍS 68 fékk aðeins 2.650 tonn í byggðakvóta á síðasta fiskveiðiári og var hann ekki nýttur. Á þessu fiskveiðiári fær Finnbjörn ÍS 68 hlut úr 5% af byggðakvóta Súðavíkurhrepps og er það skráð vera 10.550 kg.

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsti reglur um byggðakvóta fyrir Súðavík fiskveiðiárið 2016/17 ekki fyrr en 29. mars síðastliðinn. Þar er 15% byggðakvótans úthlutað til frístundaveiðibáta og 80% til báta sem hafa landað a.m.k. helmingi afla síns 2015/16 í Súðavík.Eru það einkum strandveiðibátar sem fá þann byggðakvóta. Byggðakvótinn er 166 tonn og við bætast 46 tonn sem ekki veiddust á síðasta fiskveiðiári.

Hreppsnefnd Súðavíkur vildi úthluta 30% byggðakvótans til fyrirtækis á sæbjúguveiðum.  Var það rökstutt með því  að ný störf myndu verða til í þorpinu með tilkomu þeirrar útgerðar. Því var arðlega mótmælt af Lífsbjörgu ehf og segir í bréfi þess til ráðuneytisins að brotið sé á félaginu og jafnræðis ekki gætt og komi til þess að ráðuneytið fallist á þetta fyrirkomulag verði það skoðað að fyrirtækið leiti réttar síns fyrir dómstólum.  Bent er á að þessi áform standist ekki ákvæði laga og reglna um byggðakvóta.

Niðurstaðan varð að ráðuneytið féllst ekki á málaleitan hreppsnefndar um byggðakvóta til sæbjúguveiða. Halldór Magnússon sagði aðspurður að líklegt væri að áform Lífsbjargar ehf um auknaútgerð og fiskvinnslu í Súðavík yrðu lögð til hliðar. Fyrirtækið gengi vel eins og er og er verið að stækka bátinn og gera hann betur í stakk búinn til snurvoðaveiða.

Greinin birtist fyrst í Vestfjörðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Annaðhvort veit Guðrún Hafsteinsdóttir ekki betur eða hún talar gegn betri vitund

Þorbjörg Sigríður: Annaðhvort veit Guðrún Hafsteinsdóttir ekki betur eða hún talar gegn betri vitund
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“