fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Eyjan

Ásmundur vill ekki að krónan styrkist: Veikir ferðaþjónustuna

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 28. maí 2017 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Ásmundur Friðriksson  skrifar: 

Bragurinn á þingstörfunum í vetur hefur verið að mínu mati afar góður. Þingið hefur farið vel fram, verið laust við uppþot og gauragang sem fylgdi oft umræðum undir fundarstjórn forseta á síðasta kjörtímabili og gekk langt fram úr eðlilegum þingstörfum sama hvernig litið er á það. Þá má segja að þingstarfið hafi siglt lygnari sjó og friður ríkt á stjórnar- og þingheimilinu. Í mínum nefndum, atvinnuveganefnd og umhverfis- og samgöngunefnd, hefur fjöldi mála komið fram, þó sérstaklega í umhverfisnefndinni. Bragurinn er því betri og gerir vinnustaðinn Alþingi mun betri en hann var og við Sunnlendingar getum verið ánægð með forseta Alþingis, Unni Brá Konráðsdóttur, sem hefur stjórnað þinginu af röggsemi.

Nefndarstarfið í góðum gír;

Í umhverfisnefndinni samþykktum við samhljóða ný lög um farm og farþegaflutninga sem tóku á almenningssamgöngum. Það ánægjulega gerðist var að við stóðum að sameiginlegu nefndaráliti og málið rann í gegnum þingið mótatkvæðalaust. Stórt mál fyrir almenningssamgöngur, sveitarfélögin og fólkið sem nýtir sér þennan góða og áreiðanlega samgöngumáta og nú er sveitarfélögin betur tryggð eins og leiðakerfin sem eru í gildi allt árið.

Í atvinnuveganefnd er verið að ljúka við nokkur stór mál núna fyrir þinglokin eins og í öllum nefndum en mér finnst eins og við höfum verið með færri mál til að moða úr en á síðasta þingi.

Fjármálaáætlun;

Stærsta málið í vetur er ný fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til 5 ára. Það var auðvitað við þröngan stakk að eiga að leggja fjármálaáætlunina fram á réttum tíma í apríl, en ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar sem tók við í lok janúar og þrátt fyrir að hafa skamman tíma tókst að leggja áætlunina fram og verður hún samþykkt núna í þinglok. Mér finnst þingið hafa tekið skynsamlega á því máli vinnulega séð, þó eðlileg séu mjög skiptar skoðanir um áætlunina í þinginu. Þingheimur er að feta nýjar slóðir í fjármálavinnunni sem verður örugglega til þess að bæta umræðuna og leggja línur í öllum málaflokkum Allar nefndir þingsins hafa fjallað um málaflokkana sem snerta hverja nefnd og skilað nefndaráliti til fjárlaganefndar um sína málaflokka.

Við munum auðvitað takast á við það hvernig við forgangsröðum fjármálum og hvað djúpt við viljum seilast í vasa skattborgaranna en vinnulagið er til bóta og við eigum eftir að slípast í vinnubrögðunum. Fjármálaáætlun er stóra myndin þar sem ekki er búið að deila niður fé á stofnanir eða verkefni heldur málaflokka í heild sinni og ráðuneyti.

Ríkisstjórnarsamstarfið;

Ég upplifi ríkisstjórnar samstarfið á jákvæðan hátt. Það er þriggja flokka ríkisstjórn í landinu. Ríkisstjórn stjórnmálaflokka sem lögðu mismundandi áherslur fram í síðustu alþingiskosningum og eðlilega er skoðanamunur á milli þeirra í einhverjum málum. Sum málin stærri en flest minniháttar að mínu mati. Það mikilvægasta er að sameiginleg niðurstaða er það sem við stöndum vörð um og leggjum þannig óhrædd málin fram þrátt fyrir aðeins eins manns meirihluta. En það er verkefni minnihlutans að strá salti í sárin og taka á veikleikum en það mun í enda dagsins verða til að styrkja samstarfið og við ætlum okkar að halda því út kjörtímabilið eins og lagt var upp með.

Mörg járn í eldinum;

Eins og áður verða mörg mál á dagskrá komandi þings í haust og verður málaskrá lögð fram í þingbyrjun í september. Það koma örugglega mörg mál sem ekki tekst að ljúka á þessu þingi en stefnt er að þinglokum samkvæmt starfsskrá í lok maímánaðar. Stóru málin í haust eru fjárlögin og væntanlega verður lögð fram ný samgönguáætlun. Miklar umræður eru í samfélaginu um samgöngumálin og nýjar leiðir í fjármögnun nýframkvæmda. Jón Gunnarsson ráðherra samgöngumála er að láta skoða þá kosti sem gætu orðið til að flýta uppbyggingu samgöngumannvirkja út frá höfuðborginni eins og fram hefur komið. Mikilvægt er að taka þá umræðu þegar fyrir liggja þeir kostir sem gætu komið til greina og taka ákvörðun um framhaldið. Þar getur einn kosturinn verið að gera ekki neitt í því að leita nýrra leiða, en þá verðum við líka að sjá hvernig við ætlum að byggja upp vegakerfið fyrir langa framtíð. Mín skoðun er að klárlega að við skoðum nýjar leiðir sem byggja á því að kostnaður okkar vegfarenda verði aldrei meiri en ávinningurinn af gjaldtökunni. Þar á ég við ef við spörum 3-4 lítra af bensíni þá er 3-400 króna veggjald lægra en ávinningurinn.

Þá er gjaldtaka í ferðaþjónustunni stórt mál og samkvæmt fjármálaáætlun er væntanlegt frumvarp um breytingar á lögum um virðisaukaskatt en þangað til að það liggur fyrir fer fram mjög mikil umræða um það mál þar sem skiptast skoðanir en mikilvægt er að skoða málið vel áður en tekin er ákvörðun.

Staða útflutningsgreina;

Staða íslensku krónunnar er enn að styrkjast sem gerir útflutningsgreinunum afar erfitt fyrir. Ástæðan er mikill gjaldeyrir sem streymir til landsins, vöruskiptajöfnuður hagstæður, litil verðbólga og mikill hagvöxtur. Þá hafa gjaldmiðlar veikst eins og breska pundið sem hefur margfeldisáhrif á lækkun á viðskiptum sem við eigum við Breta. Við finnum það öll að það er auðveldara að ná saman endum í heimilisbókhaldinu og mikilvægt að halda áfram á sömu braut. En það þarf að gera ráðstafanir svo gengið haldi ekki áfram að styrkjast og veikja þannig afkomu útflutningsgreinanna þar með talið ferðaþjónustunnar sem er að skapa langmest af þeim gjaldeyri sem til þjóðarbúsins rennur.

Greinin birtist fyrst í Suðra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þorbjörg Sigríður: Hvernig var passað upp á gögnin sem láku frá sérstökum saksóknara?

Þorbjörg Sigríður: Hvernig var passað upp á gögnin sem láku frá sérstökum saksóknara?
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Upplifði höfnun eftir kosningarnar og fannst það ósanngjarnt – Segir að síðasta ríkisstjórn hafi setið of lengi

Upplifði höfnun eftir kosningarnar og fannst það ósanngjarnt – Segir að síðasta ríkisstjórn hafi setið of lengi
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi