fbpx
Miðvikudagur 20.ágúst 2025
Eyjan

Fjármálaráðherra: Það er góður bisness að búa utan Reykjavíkur

Ari Brynjólfsson
Mánudaginn 31. júlí 2017 09:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra og formaður Viðreisnar. Mynd/Sigtryggur Ari

Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahagsráðherra segir það einfaldlega „góðan bisness“ fyrir fólk að vilja búa fyrir utan höfuðborgarsvæðið. Segir hann að besta byggðastefnan séu greiðar samgöngur, þar á meðal jarðgöng, ferjur og flug. Benedikt segir í færslu á Fésbók að eð því að líta á flug sem almenningssamgöngur fyrir þá sem búa fjarri höfuðborgarsvæðinu áynnist margt:

Flugferðir urðu tíðari og hagkvæmari. Þannig yrði ferðaþjónustan sterkari á þessum svæðum,

segir Benedikt. Deilir ráðherra grein Ívars Ingimarssonar sem skrifaði á Kjarnann að það hallaði á landsbyggðina því fólk sæi sér ekki fært að búa úti á landi þar sem þjónusta, afþreying, tækifæri og atvinna væri frekar að finna í höfuðborginni:

„Það þarf að byggja upp sterka byggð­­ar­kjarna í hverjum fjórð­ungi sem hafa gott aðgengi að höf­uð­­borg­inni, þannig mun fólki fjölga út á landi, en fjölgun fólks er lyk­il­at­riði þess að auka þjón­ustu, fjölga tæki­­færum, byggja upp aðstöðu og skapa atvinnu á sjálf­­bæran hátt sem mun á end­­anum leiða til jafn­­vægis milli lands­byggða og höf­uð­­borg­­ar,“

segir Ívar og bætir við:

„Að gera inn­­an­lands­flug að almenn­ings­­sam­­göngum eins og gert er í Skotlandi er ein­­föld og fljót­­leg leið til að stuðla að þessu jafn­­vægi, slíkt aðgerð mun styrkja þá byggð­­ar­kjarna sem nú þegar hafa sýnt sig að fólk vill búa á.“

Benedikt, sem er þingmaður Norðausturkjördæmis, hvetur fólk til að kynna sér málflutning Ívars, það sé „góður bisness“ að fólk vilji búa utan höfuðborgarinnar:

Ungt fólk sem vill nýta sér kosti þess að búa á landsbyggðinni gæti notið þjónustu og menningar á höfuðborgarsvæðinu mun tíðar. Margir telja að slíkt tal sé landsbyggðarvæl, en það er einfaldlega góður bisness að fólk vilji búa annars staðar en í Reykjavík. Þannig er hægt að byggja upp ferðaþjónustu og ýmiss konar iðnað tengdan sjávarútvegi víða um landið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sjálfstæðisflokkurinn: Innistæðulausir frasar – ætti heldur að hlusta en tala

Sjálfstæðisflokkurinn: Innistæðulausir frasar – ætti heldur að hlusta en tala
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson: Hvers vegna voru tillögur um afturköllun umsóknar svæfðar í tíð Sigmundar Davíðs og Guðlaugs Þórs?

Þorsteinn Pálsson: Hvers vegna voru tillögur um afturköllun umsóknar svæfðar í tíð Sigmundar Davíðs og Guðlaugs Þórs?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Öldungurinn sem sá ekki vandann

Svarthöfði skrifar: Öldungurinn sem sá ekki vandann