Á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar nýlega kom fram að innanríkisráðuneytið hefði í sínu verklagi við uppreist æru dæmds kynferðisbrotamanns farið eftir ríkjandi lögbundinni framkvæmdalegri hefð. Því fer fjarri að þar hafi hafi huglæg afstaða eða annarlegar hvatir komið nærri. Ráðuneytið hefur fylgt sama verklagi í áratugi, sama hvaða brot voru undir og þvert á pólitíska ráðherra og ríkisstjórnir til hægri og vinstri.
Þetta segir Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í grein í helgarblaði Fréttablaðsins. Hún segir mikilvægt í réttarríki að viðhafa sama verklagið þvert á ríkisstjórnir og sama hvaða einstaklingar og aðstæður eigi í hlut hverju sinni.
Því vakti það athygli mína eftir fund nefndarinnar að Svandís Svavarsdóttir orðaði það svo í fjölmiðlum að verklag ráðuneytisins, og þá sérstaklega varðandi fyrirkomulag vegna meðmæla, hafi verið of „vélrænt.“
segir Hildur.
„Þó það sé vissulega þarft að endurskoða lagarammann í kringum verklagið sem snýr að því að veita borgaraleg réttindi eftir afplánun dóma verður í þeirri endurskoðun að fara varlega í að opna fyrir að það verklag verði á einhvern hátt meira háð huglægu mati í hverju máli fyrir sig. Það er einn af hornsteinum stjórnsýslureglna að einstaklingar geti þvert á móti gengið að því vísu að umsóknum þeirra sé mætt „vélrænt“ í stjórnkerfinu. Vélræn vinnubrögð kerfisins má með öðrum orðum kalla til dæmis mikilvægar jafnræðisreglur stjórnsýslunnar – þar sem allir lúta sömu lögmálum varðandi réttindi þeirra og skyldur án nokkurra huglægra atriða. Því er brýnt að við endurskoðun lagaramma vegna veitingar uppreistar æru verði þungamiðjan skýrar og hlutbundnar reglur með viðmiðum sem í engu byggjast á huglægu mati ráðamanna hverju sinni,“ segir Hildur Sverrisdóttir.