

Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness segir raunverulegt virði eigna lífeyrissjóðanna hér á landi sé mun minna en afkomutölur segi til um. Ljóst sé að verðlækkun á hlutabréfum á Högum komi til með að hafa áhrif á afkomutölur lífeyrissjóðanna. Hagar, sem reka meðal annars verslanir Bónuss og Hagkaupa, eru að stærstum hluta að í eigu lífeyrissjóða en greint var frá í morgun að virði Haga hefur lækkað um tæpa 19 milljarða frá því að verslun Costco opnaði í Garðabæ fyrir rúmum tveimur mánuðum.
Sjá frétt: Virði Haga hefur lækkað um 18,6 milljarða frá opnun Costco
Reyndar var magnað að íslensku lífeyrissjóðirnir skyldu vera með 0% raunávöxtun á árinu 2016. Já, íslensku lífeyrissjóðirnir skiluðu 0% raunávöxtun í fyrra en heildareignir sjóðanna nema 3600 milljörðum,
segir Vilhjálmur á Fésbók, hann bætir við:
Að hugsa sér að árangur lífeyrissjóðanna til ávöxtunar á lífeyrir launafólks var 0% og það þrátt fyrir að það kosti um eða yfir 10 milljarða á ári að reka lífeyrissjóðina. Hvar er öll ábyrgðin sem talað erum að menn á góðum launum beri?
Segir hann það vera löngu tímabært að endurskoða lífeyriskerfið frá grunni:
…er það mitt mat að raunverulegt virði eigna lífeyrissjóðanna hér á landi er mun minna en afkomutölur segja til um. Það er hægt að spyrja sig t.d. hver á að kaupa af lífeyrissjóðunum þegar kemur að því að losa þarf um eignir hjá sjóðunum, en lífeyrissjóðirnir segjast eiga eignir hér á landi fyrir 2800 milljarða! Hver á að kaupa?