fbpx
Föstudagur 21.nóvember 2025
Eyjan

Námslán – eilífðar fylginautur

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 17. september 2017 18:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðjón S. Brjánsson skrifar:

Skólar landsins hafa nú opnað dyr sínar að nýju eftir sumarhlé.  Umræða um skóla- og menntamál er því mikil um þessar mundir og það er eðlilegt því þetta er málefni sem snertir okkur öll, hvar sem við búum á landinu. Rætt er um gildi skólastarfsins, lengd og fyrirkomulag, innihald og gæði menntunar og ófullnægjandi kjör kennara, kostnað nemenda og líðan þeirra í skólanum svo fátt eitt sé nefnt. Námslán, námsaðstoð og viðmót gagnvart námi er einn angi umræðunnar.

Það er tæplega ágreiningur um að aukin þekking og menntun í hvaða mynd sem er leiði til víðsýni og umburðarlyndis, efli og bæti samfélög.  Á Íslandi hafa viðhorfin til fyrirgreiðslu við námsfólk þróast með öðrum hætti en í nágrannalöndum.  Síðasta aldarfjórðunginn hefur löggjafinn horft á fjárhagslega námsaðstoð í meginatriðum sem hefðbundin lán sem greiðast skuli til baka að fullu, verðtryggð.  Ég heyrði nýlegt og raunverulegt dæmi um einstakling sem innir af hendi um 660 þúsund króna heildargreiðslur af námsláni sínu á þessu ári eftir 21 ár í námslánagreiðslum og enn standa eftir tæplega 8 milljónir króna. Ef þessum einstaklingi endist aldur og greiðslugeta, þá lýkur hann námsláagreiðslum þegar hann nær áttræðisaldri, 13 árum eftir almenna eftirlaunatöku.  Að þessu leyti skiljum við Íslendingar okkur algjörlega frá öðrum Norðurlöndum. Þetta er til vansa fyrir þjóð sem byggir æ meira á þekkingarleit og menntun og á þar allt undir ekki síður en önnur lönd.

Guðjón Brjánsson þingmaður Samfylkingarinnar.

Samfylkingin hefur ítrekað lagt fram frumvarp til laga um sanngjarnar lagfæringar á núverandi lögum um námslán, síðast á nýliðnu þingi.  Þær lúta að tveimur þáttum. Annars vegar, að skuldbindingar ábyrgðarmanna á eldri lánum falli niður þegar viðkomandi nær 67 ára aldri eða við fráfall hans.  Dæmi eru um það í núgildandi lögum að háaldrað fólk og/eða aðstandendur verði fyrir verulegum búsifjum vegna ábyrgða. Ákvæðin ganga út yfir gröf og dauða og afkomendur standa jafnvel andspænis óvæntum og óréttlátum skuldbindingum.  Hin breytingin er sú að námslán falli niður á því ári sem skuldari nær 67 ára aldri. Með því er verið að nálgast viðmót Norðurlandaþjóðanna þar sem endurgreiðslutíminn er mun styttri eða jafnan um 15 – 20 ár.  Þar eru reyndar styrkir verulegur hluti námsaðstoðarinnar.

Í fyrravor var lagt fyrir Alþingi frumvarp um námslán og námsstyrki sem ekki náði fram að ganga þar sem ágreiningur var um mikilvæg atriði. Efnislega hneig þó frumvarpið í þá átt sem ásættanlegt getur talist en verulega galla þarf að sníða burt.  Ef hin dáðlausa ríkisstjórn sem nú situr við völd hugsar sér ekki til hreyfings varðandi ný lög um námslán og námsstyrki strax á næsta þingi mun Samfylkingin endurflytja frumvarp sitt enn einu sinni í þeirri viðleitni að knýja fram sanngjarna réttarbót fyrir námsfólk og ábyrgðarmenn eldri lána.

Birtist fyrst í Vestfirðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón Guðni Ómarsson: Miklar erlendar skuldir Bandaríkjanna rótin að tollastefnu Trump – aðrar leiðir hefðu verið betri

Jón Guðni Ómarsson: Miklar erlendar skuldir Bandaríkjanna rótin að tollastefnu Trump – aðrar leiðir hefðu verið betri
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Dýr mundi Trump allur, ef svo skyldi æra hans

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Dýr mundi Trump allur, ef svo skyldi æra hans
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir: Öllum er nákvæmlega sama um Sjálfstæðisflokkinn – hann hefur ekkert að segja

Kolbrún Bergþórsdóttir: Öllum er nákvæmlega sama um Sjálfstæðisflokkinn – hann hefur ekkert að segja
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Úrsúla frá Lundi

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Úrsúla frá Lundi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Uppblásinn hoppukastali Sjálfstæðismanna til sölu – nafnið öfugmæli

Svarthöfði skrifar: Uppblásinn hoppukastali Sjálfstæðismanna til sölu – nafnið öfugmæli
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Guðni Ómarsson: Lánaformið á Íslandi keimlíkt því sem er í Noregi og Svíþjóð

Jón Guðni Ómarsson: Lánaformið á Íslandi keimlíkt því sem er í Noregi og Svíþjóð
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagur B. Eggertsson: Bændur gætu orðið fremstir í stuðningsliði Evrópusambandsaðildar

Dagur B. Eggertsson: Bændur gætu orðið fremstir í stuðningsliði Evrópusambandsaðildar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Willum nýtur vinsælda og virðingar – verður sennilega næsti formaður Framsóknar

Orðið á götunni: Willum nýtur vinsælda og virðingar – verður sennilega næsti formaður Framsóknar