fbpx
Fimmtudagur 20.nóvember 2025
Eyjan

Stórsókn gegn ofbeldi: Fundur Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Mánudaginn 16. október 2017 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kvennahreyfing Samfylkingarinnar boðar til fundar um stórsókn gegn ofbeldi þriðjudaginn 17. október. Fundurinn verður haldinn á veitingastaðnum Hlemmi Square, Laugavegi 105, og hefst hann klukkan 17:00. Fundurinn er öllum opinn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samfylkingunni. Þar kemur einnig fram að Samfylkingin hafi sett fram áætlun þar sem tiltekið er að setja skuli einn milljarð króna á ári á komandi kjörtímabili í átak til að takast á við ofbeldi í íslensku samfélagi.

 „Síðustu daga hefur ótölulegur fjöldi kvenna um heim allan risið upp og greint frá kynferðislegri áreitni og ofbeldi í öllum geirum samfélagsins. Enn og aftur er bent á hvers konar samfélagslegur faraldur ofbeldi gegn konum er. Í aðgerðaráætlun Samfylkingarinnar er lögð rík áhersla á að takast á við og sporna gegn kynbundnu ofbeldi og kynferðislegu, auk annars ofbeldis. Nú verður ekki lengur við unað, nú verðum við að grípa til aðgerða.“

Á fundinum flytja ávarp Andrea Eyland, Helga Lind Mar og Edda Ýr Garðarsdóttir sem allar hafa verið virkar í femínískri baráttu gegn ofbeldi, auk Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, varaformanns Samfylkingarinnar og formanns Ofbeldisvarnarráðs Reykjavíkurborgar. Að þeim erindum loknum fara þrír frambjóðendur Samfylkingarinnar, þau Ágúst Ólafur Ágústsson, Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir og Helga Vala Helgadóttir, yfir áherslur í baráttunni gegn ofbeldi og hversvegna Samfylkingin hefur sett það á stefnuskrá sína að hefja stórsókn gegn ofbeldi. Þá verður fundurinn í beinni útsendingu á netinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Miðflokkur á flugi, miklar breytingar í borgarstjórn – enn má Sjálfstæðisflokkurinn bíða

Orðið á götunni: Miðflokkur á flugi, miklar breytingar í borgarstjórn – enn má Sjálfstæðisflokkurinn bíða
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir: Öllum er nákvæmlega sama um Sjálfstæðisflokkinn – hann hefur ekkert að segja

Kolbrún Bergþórsdóttir: Öllum er nákvæmlega sama um Sjálfstæðisflokkinn – hann hefur ekkert að segja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón Guðni Ómarsson: Lánin óhagstæðari ef vextir eru festir út lánstímann

Jón Guðni Ómarsson: Lánin óhagstæðari ef vextir eru festir út lánstímann
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Tilkynna um flug milli Íslands og Montreal

Tilkynna um flug milli Íslands og Montreal
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Falleinkunn fyrir Guðrúnu – afturhaldið situr á þingi undir merkjum Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Falleinkunn fyrir Guðrúnu – afturhaldið situr á þingi undir merkjum Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagur B. Eggertsson: Vextir á framkvæmdalánunum fjórfaldir hér á landi – látið eins og ekkert sé hægt að gera

Dagur B. Eggertsson: Vextir á framkvæmdalánunum fjórfaldir hér á landi – látið eins og ekkert sé hægt að gera