fbpx
Fimmtudagur 20.nóvember 2025
Eyjan

Karl Gauti: Þurfum að ljúka við veginn ekki seinna en NÚNA

Ari Brynjólfsson
Sunnudaginn 15. október 2017 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karl Gauti Hjaltason, oddviti F listans í Suðurkjördæmi.

Karl Gauti Hjaltason, oddviti F listans í Suðurkjördæmi, skrifar:

Undirritaður hefur ákveðið að gefa kost á sér í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum, og skipa ég efsta sæti á lista Flokks fólksins í kjördæminu. Þar sem ég er nýr í pólitíkinni liggur beinast fyrir að kynna mig. Ég er lögfræðingur og hef verið formaður yfirkjörstjórnar Suðurkjördæmis í nær 20 ár. Mörg ykkar kannast e.t.v. við mig þar sem ég hef víða unnið í kjördæminu, þannig starfaði ég í tæp 8 ár hjá sýslumannsembættinu hér á Selfossi, en lengst af var ég sýslumaður í Vestmannaeyjum og tel mig þekkja töluvert til um hvað helst mæðir á í kjördæminu og vil þar fyrst nefna samgöngur, ferðaþjónustu, sjúkraþjónustu og atvinnufyrirtækin.

Þannig brenn ég í skinninu til að fá að takast á við að sinna því sem þarf að færa til betri vegar. Ég er tilbúinn til að leggja mitt af mörkum til hagsbóta fyrir Sunnlendinga, kjördæmið í heild og allt landið, ef ég næ kjöri inn á alþingi okkar Íslendinga.

Ég tel að ýmislegt þurfi að bæta til þess að sjúkrahúsþjónusta fyrir íbúa víða úti á landi sé viðunandi og allt of mikið þurfi þar að sækja til Reykjavíkur, sjúkrahúsin úti á landi séu fjársvelt og sérfræðiþjónusta hafi dregist saman. Allt þetta veldur áhættu, óþægindum og kostnaði fyrir íbúana. Ég held að unnt sé að færa þar ýmislegt til betri vegar.

Mynd/DV

Samgöngumálin hafa batnað, en betur má ef duga skal. Fullklára þarf veginn yfir Hellisheiði og ljúka við veginn milli Hveragerðis og Selfoss ekki seinna en NÚNA. Það gengur ekki að horfa á eftir mannslífum á þessum vegarköflum sem eru með allra umferðarþyngstu þjóðvegum landsins.

Ferðaþjónustan er bjargvættur þjóðarinnar og þarf að tryggja að rekstrargrundvelli hennar sé ekki kollvarpað með misvitrum ákvörðunum. Sama má segja um aðbúnað í kringum ferðamannastaði, sem eru mörgum árum á eftir fjölda ferðamanna, og í raun umhverfismál að lagfæra. Löggæslumálin eru mér ofarlega í huga, þar sem ég hef lengst af starfað á þeim vettvangi.

Ég tel að fækkun lögreglumanna standi löggæslu fyrir þrifum víða um land og gefa þurfi duglega í til að auka almenna löggæslu. Flokkur fólksins er almennt með á stefnuskrá sinni að bæta kjör verkafólks, lífeyris- og öryrkja, því þeir hafa sannarlega ekki fengið sinn skerf að hagvexti umliðinna ára. Þetta hyggjumst við gera með því t.d. að hækka skattleysismörk stórlega. Við eigum að hafa efni á að veita öllum sómasamlegt lífviðurværi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Miðflokkur á flugi, miklar breytingar í borgarstjórn – enn má Sjálfstæðisflokkurinn bíða

Orðið á götunni: Miðflokkur á flugi, miklar breytingar í borgarstjórn – enn má Sjálfstæðisflokkurinn bíða
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir: Öllum er nákvæmlega sama um Sjálfstæðisflokkinn – hann hefur ekkert að segja

Kolbrún Bergþórsdóttir: Öllum er nákvæmlega sama um Sjálfstæðisflokkinn – hann hefur ekkert að segja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón Guðni Ómarsson: Lánin óhagstæðari ef vextir eru festir út lánstímann

Jón Guðni Ómarsson: Lánin óhagstæðari ef vextir eru festir út lánstímann
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Tilkynna um flug milli Íslands og Montreal

Tilkynna um flug milli Íslands og Montreal
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Falleinkunn fyrir Guðrúnu – afturhaldið situr á þingi undir merkjum Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Falleinkunn fyrir Guðrúnu – afturhaldið situr á þingi undir merkjum Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagur B. Eggertsson: Vextir á framkvæmdalánunum fjórfaldir hér á landi – látið eins og ekkert sé hægt að gera

Dagur B. Eggertsson: Vextir á framkvæmdalánunum fjórfaldir hér á landi – látið eins og ekkert sé hægt að gera