fbpx
Laugardagur 15.nóvember 2025
Eyjan

Ofstæki rétttrúnaðar

Trausti Salvar Kristjánsson
Fimmtudaginn 21. desember 2017 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Steinar Gunnlaugsson og Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Samsett mynd/DV

Jón Steinar Gunnlaugsson ritar:

Þau tíðindi berast nú að hafin sé aðför í Háskóla Íslands að Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor. Er tilefnið sagt vera að í stjórnmálafræðideild skólans sé notuð kennslubók þar sem kennsluhættir innihaldi „kvenfyrirlitningu, fitufordóma, kynþáttafordóma og niðurlægjandi orð um fatlaða“. Höfundur þessarar bókar mun vera Hannes prófessor. Í fréttum af málinu kemur fram að ummælin sem valda upphlaupinu sé að finna í kafla þar sem fjallað er um klámsölu og vændiskaup.

 

Ummælin eru sögð vera þessi:

 

„Vændiskaupendur eru margskonar. Ætti sú staðreynd, að þeir eru margir

ófrýnilegir karlskröggar, ekki að vekja samúð frekar en reiði? Hvert eiga þeir að

leita, sem geta ekki útvegað sér rekkjunaut á neinn annan hátt en að greiða fyrir

hann, til dæmis fólk sem á við fötlun, offitu eða aðra líkamsgalla að etja?“

 

Og einnig:

 

„Ef maður fær að skoða klámblað eða klámmyndir eða kaupa blíðu af konu í

vændishúsi, þá ættu líkur að minnka á því, að hann beiti örþrifaráðum eins og

nauðgun eða lostugu athæfi á almannafæri til þess að svala kynhvöt sinni.“

 

 

Mun þess meðal annars vera krafist að bókin sem um ræðir verði tekin úr

umferð sem kennslugagn, eins og komist er að orði.

 

Fáviska

Allir læsir menn ættu að greina ofstækið sem býr að baki þessari árás á

prófessorinn. Hann er aðeins að fjalla um þjóðfélagsmál sem eðlilegt er að

fjallað sé um í þessari kennslugrein. Hann er, eins og góðum fræðimanni sæmir,

að velta upp sjónarmiðum sem augljóslega skipta máli þegar um þau er fjallað.

Það er grafalvarlegt mál fyrir Háskóla Íslands að nemendur og að minnsta kosti

einn kennari (fyrrverandi?) við skólann skuli hafa uppi þennan málatilbúnað.

Tilgangurinn er sýnilega að vilja stjórna umræðuefnum í vísindum með því

hreinlega að banna umfjöllun um málefni sem tengjast þeirri bylgju rétttrúnaðar

og fávisku sem um þessar mundir flæðir yfir samfélag okkar. Þetta fólk krefst

þess meðal annars að bannið eigi að taka til vísindalegrar umfjöllunar, sem

einungis felur í sér ábendingar um augljós málsatriði sem tengjast því málefni

sem um er fjallað.

 

Það hefur orðið vaxandi vandamál í vestrænum háskólum að á síðari tímum hafa

komið upp háværar kröfur lýðskrumsins um að einungis megi fjalla í skólunum

um efni sem fellur að orðagjálfri rétttrúnaðarins í samfélaginu. Þetta eru viðhorf

fólks sem virðist ekki skilja þýðingu þess að fjallað sé um málin frá öllum

hliðum. Það vill banna orðræðu sem því líkar ekki. Nú er að vísu ekki auðvelt að

skilja hvað rétttrúnaðarsinnar hafa við ummæli prófessors Hannesar að athuga.

Ætli þar komi líka við sögu einhvers konar andúð á honum sem tengist

stjórnmálaskoðunum hans? Það skyldi þó ekki vera?

 

Akademískt frelsi

Það er afar þýðingarmikið að yfirstjórn Háskóla Íslands láti ekki þessa

lágkúrulegu árás á prófessorinn hafa önnur áhrif á sig en að strengja þess heit að

við skólann skuli ríkja akademískt frelsi. Til þess heyrir auðvitað rík virðing

fyrir tjáningarfrelsi háskólamanna. Ofstækismenn ættu að reyna að skilja að

aðferð tjáningarfrelsis, sem vestrænar þjóðir vilja halda í heiðri, snýst um að við

tökumst á með orðum í stað þess að banna skoðanir og tjáningu þeirra sem

kunna að segja eitthvað sem okkur geðjast ekki að. Þessi gildi ber Háskóla

Íslands að vernda af öllum kröftum.

 

Jón Steinar Gunnlaugsson hrl.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Okkur fækkar og okkur fjölgar

Sigmundur Ernir skrifar: Okkur fækkar og okkur fjölgar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Ég ætla ekki að berja þig, Sveinn Andri, ég kæri þig til siðanefndar lögmanna

Reynir Traustason: Ég ætla ekki að berja þig, Sveinn Andri, ég kæri þig til siðanefndar lögmanna
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins