fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Davíð Oddsson sjötugur í dag – „Ég er ekk­ert að hugsa um að hætta“

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 17. janúar 2018 09:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Davíð Oddson

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra, er sjötugur í dag. Af því tilefni fór hann í viðtal á útvarpsstöð Árvakurs, K100, í morgun. Þar kvaðst hann ekki ætla að setjast í helgan stein, líkt og tveir forverar hans, þeir Styrmir Gunnarsson og Matthías Johannessen gerðu þegar þeir urðu sjötugir.
Davíð var hress og kátur og lék við hvurn sinn fingur. Hann sagðist til dæmis vera B-týpa og því ekki vanur að vera svona snemma á fótum:

„Ég er rallandi fram­eft­ir og er að skrifa grein­ar til eitt, tvö á nótt­unni, en það er ekki ástæðan fyr­ir að þær séu svona skrýtn­ar,“

sagði Davíð kíminn. Hann bætti svo við:

„Ég hafði þó aga á mér þann tíma sem ég var í for­sæt­is­ráðuneyt­inu og mætti til­tölu­lega snemma þar. Það komu nú oft er­lend­ir menn sem vildu nota dag­inn vel og maður gat ekki leyft sér hvað sem er. Ég gat ekki sofið bara fjóra tíma á dag eins og frú Thatcher.“

Davíð minntist einnig tímans sem borgarstjóri og lét vel af honum. Hann rifjaði upp skemmtilega sögu af gosbrunni Tjarnarinnar:

„Það var gam­an í borg­inni. Ég var níu ár þar og naut hverr­ar stund­ar. Ég hafði meira að segja fjar­stýr­ingu sem gat kveikt á gos­brunn­in­um í Tjörn­inni í borg­ar­stjóra­bíln­um,“

 

sagði Davíð og minntist þess að þannig hafði hann getað strítt þeim sem hringdu í sig og kvörtuðu yfir því að gos­brunn­ur­inn væri ekki í gangi:

„Ég á fjar­stýr­ing­una ennþá, en veit ekki hvort hún virk­ar.“

 

Í Morgunblaðinu í dag er þriggja síðna grein um aðkomu Davíðs að bankahruninu, eftir Hannes Hólmstein Gissurason, vin Davíðs og einn helsta hugmyndafræðing Sjálfstæðisflokksins á valdatíma hans. Greinin heitir „Því var bjargað sem bjargað varð-Davíð Oddsson og bankahrunið 2008“ og er fróðleg lesning fyrir alla áhugasama.
Afmælishóf verður haldið Davíð til heiðurs í húsakynnum Árvakurs í Hádegismóum fyrir vini og velunnara afmælisbarnsins, í dag milli 16 og 18.

Eyjan óskar Davíð hjartanlega til hamingju með daginn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins