fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Skúli Mogensen er genginn út

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 27. apríl 2017 10:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fréttir berast nú af því að Skúli Mogensen forstjóri Wow-air sé kominn í samband. Nýja kærastan heitir Gríma Björg Thorarensen og starfaði um skeið sem flugfreyja hjá sama fyrirtæki. Hún er Garðbæingur en búsett í Vesturbænum.

Myndin er samsett

Gríma er 26 ára og er í krabbamerkinu en Skúli er 49 ára og meyja. Samkvæmt stjörnuspekinni eiga merkin prýðilega saman, þó að hlutirnir fari hægt af stað. Það á einmitt við í tilfelli Skúla og Grímu, en heyrst hefur að þau hafi hist um nokkuð skeið áður en fréttirnar láku í fjölmiðla. Jarðbundin ást og langvarandi hamingja á fyrir þeim að liggja, ef marka má það sem hinn virti stjörnuspekivefur Astrology.com hefur að segja um merkin.

 

Þess má geta að Völva Vísis reyndist sannspá því samkvæmt hennar orðum átti Skúli að kynna nýja kærustu fyrir þjóðinni um mitt ár 2017 – og það innanbúðarmannesku. Með smá skekkjumörkum passar þetta alveg!

 

Skúli skildi við eiginkonu sína Margréti Ásgeirsdóttur árið 2013 en sambönd hans síðan þá hafa vakið athygli. Þar ber helst að nefna rúmlega tveggja ára samband við fjölmiðlakonuna Friðriku Hjördísar Geirsdóttur – en það stóð yfir frá sumarlokum 2013 til haustsins 2015. Í fyrra var Skúli um skeið í sambandi með Írisi Örnu Geirsdóttur fittnesskonu.

Við óskum nýja parinu til hamingju með gæfuna og sendum þeim átjánþúsund ósýnilega glimmerblómavendi og fimmhundruð mjúka og ósýnilega kettlinga til að fagna ástinni!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
Pressan
Í gær

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.