fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Fullkomin förðun með nýju burstasettunum frá Real Techniques

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 31. maí 2017 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú voru að mæta í verslanir tvö ný og falleg burstasett frá Real Techniques sem ættu að gleðja hvaða burstasafnara sem er! Um er að ræða eitt sett til að gefa hinn fullkomna farðagrunn og annað sett til að gefa húðinni hina fullkomnu ljómandi áferð.

 

Fresh Face Favorites settið inniheldur allt sem þú þarft til að gera hinn fullkomna náttúrulega farðagrunn! Í settinu er að finna splunkunýjan BB/CC krem bursta ásamt tveimur öðrum burstum sem eru Real Techniques aðdáendum vel kunnugir en þeir eru Contour brush og Detailer brush. Ásamt þessum þremur burstum er að finna sex svampa sem má nota bæði þurra og raka til að blanda út farðann enn betur.

 

Redy Set Glow settið inniheldur síðan allt sem þú þarft til að ná geislandi húð! Í settinu er að finna glænýjan blævængsbursta en þessi er stærri en þeir blævængsburstar sem að Real Techniques hefur gefið út áður. Strobing Fan burstinn er því fullkominn til að bera ljóma á andlitið. Í settinu er einnig að finna tvo aðra bursta sem við höfum séð áður í öðrum settum en sá fyrsti er Target blending brush. Sá bursti er fullkominn til að nota í fljótandi ljóma. Seinni burstinn er er Multitask cheek brush en hann má nota á alla vegu bæði í kinnalit, sólarpúður eða ljómapúður. Hinn margumrómaða Miracle sculpting sponge er síðan einnig að finna í settinu.

Bæði Fresh Face Favorites og Redy Set Glow settin eru mætt á sölustaði Real Techniques en setting koma einungis í takmörkuðu upplagi svo það er um að gera að hafa hraðar hendur ef þið girnist þessi!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Segir Víking reyna að losa Elías nokkrum mánuðum eftir komu hans

Segir Víking reyna að losa Elías nokkrum mánuðum eftir komu hans
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

„Þeir tóku þátt í að verja biskupinn alveg fram í rauðan dauðann og mér finnst bara að þeir mættu allir sem einn skammast sín“

„Þeir tóku þátt í að verja biskupinn alveg fram í rauðan dauðann og mér finnst bara að þeir mættu allir sem einn skammast sín“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Útilokaðar frá Ascot vegna tengsla foreldranna við Epstein

Útilokaðar frá Ascot vegna tengsla foreldranna við Epstein
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.