fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025

Bakað eggaldin

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 28. maí 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mæðgurnar, Sólveig og Hildur, halda úti bloggsíðunni maedgurnar.is þar sem þær deila gómsætum uppskriftum með fallegum myndum. Þær deildu nýlega uppskrift að bökuðu eggaldin og fékk Bleikt góðfúslegt leyfi að deila henni með lesendum.

Þessa dagana eru til ofsalega falleg og góð eggaldin í búðunum. Við höfum meira að segja rekist á íslensk eggaldin nýlega. Ofnbakað eggaldin finnst okkur virkilega ljúffengt. Okkur finnst gott að nota bakaða eggaldin helminga sem grunn sem við fyllum af því góðgæti sem við eigum til þann daginn. Svona á sama hátt og margir baka pizzu á hverjum laugardegi, en setja ekki alltaf sama álegg í hvert skipti. Klassíski eggaldinrétturinn okkar er Eggaldin með hnetu- og kryddjurtapestó sem við höfum stundum haft sem hátíðarrétt. En fyrir hversdagslegri útgáfu skellum við einfaldlega eggaldinhelmingum í ofninn og setjum það sem við eigum til eða langar í ofan á. Í þetta sinn fékk rétturinn á sig svolítið mexíkóskan blæ, með baunum, avókadó, kóríander og djúsí kasjúhnetusósu.

Galdurinn við gott eggaldin er að leyfa því að bakast alveg í gegn og verða vel mjúkt og kremað innan í, en fallega brúnt utan á. Ef eggaldinið er ekki nógu vel bakað þá verður áferðin frekar óspennandi, sem er synd því vel bakað bráðnar það í munni. Gott er að skera rákir í eggaldinkjötið til að baksturinn heppnist vel.

Okkur langaði í eggaldin með svörtum baunum, sætum kartöflum, avókadó og kóríander, og svo auðvitað djúsí sósu. Svo áttum við til alveg ótrúlega litfagurt rauðkál sem okkur fannst hækka fegurðarstuðulinn, en það er ekki nauðsynlegt að kaupa heilan rauðkálshaus bara fyrir þessa uppskrift.

Við notuðum líka rómaneskó, sem er ættingi brokkolís og blómkáls, vegna þess að okkur finnst það svo fallegt. En ættingjarnir eru alveg jafn góðir í þennan rétt, þar sem rómaneskó er ekki alltaf til á hverju heimili.

Eggaldin

2 eggaldin, skorin í tvennt
2 msk ólífuolía
1 msk sítrónusafi
1 tsk timian
½ tsk salt
smá nýmalaður svartur pipar

Aðferð

  1. Skerið hvert eggaldin í tvennt og skerið í sárið rákir á ská.
  2. Hrærið saman olíu, sítrónusafa, timian, sjávarsalt, pipar og pennslið eggaldinin.
  3. Setjið í ofnskúffu og bakið við 200° í 35mín.
  4. Á meðan eggaldinin eru að bakast í ofninum er tilvalið að undirbúa fyllinguna og sósuna.
  5. Látið eggaldinin kólna smá stund áður en fyllingin er sett á.

Fylling

100g bakað grasker eða sæt kartafla (bakið við 200°C í 15 mín – lengur ef bitarnir eru þykkir)
75g romanesko, litað blómkál eða brokkolí, skorið í “blóm” og steikt á grillpönnu í 2-3 mín
nokkrir mjög þunnt skornir rauðkálsstrimlar
2 avókadó, stöppuð með smá sítrónusafa og sjávarsalti
50g soðnar svartar baunir (við notuðum úr dós)
50g soðið kínóa
nokkrar pístasíuhnetur, gott að þurrista á pönnu í 2-3 mín
2 msk ferskur kóríander

Aðferð

  1. Skerið niður sæta kartöflu/grasker og bakið með eggaldininu í síðustu 15-20 mínúturnar.
  2. Finnið allt hráefnið til og útbúið því næst kasjúsósuna.

Kasjúsósa

2 dl kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 2 klst
½ dl vatn
¼ dl límónusafi
2 döðlur, smátt saxaðar
2 tsk næringarger
1 tsk laukduft
1 hvítlauksrif
bragðist til með sjávarsalti

Aðferð

  1. Setjið allt í blandara og blandið þar til silkimjúkt. Ef þetta er of þykkt má þynna með smá vatni, en passið að setja ekki of mikið vatn því þá verður blandan of þunn.

Njótið!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Einn besti leikmaður Tottenham ekki getað æft og er tæpur fyrir úrslitaleikinn

Einn besti leikmaður Tottenham ekki getað æft og er tæpur fyrir úrslitaleikinn
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Hilmar situr uppi með milljóna kostnað vegna ofsaveðurs og fær enga hjálp

Hilmar situr uppi með milljóna kostnað vegna ofsaveðurs og fær enga hjálp
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Sjötug kona varð fyrir árás og eftirför unglinga í Kópavogi – „Mér fannst þetta skuggalegt“

Sjötug kona varð fyrir árás og eftirför unglinga í Kópavogi – „Mér fannst þetta skuggalegt“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Ten Hag efstur á blaði fyrir stóra starfið sem er að losna

Ten Hag efstur á blaði fyrir stóra starfið sem er að losna
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Þessir tveir hlutir eru á algjörum bannlista hjá Karli og Kamillu í bresku konungshöllinni

Þessir tveir hlutir eru á algjörum bannlista hjá Karli og Kamillu í bresku konungshöllinni
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sheik Jassim gæti komið að borðinu og reynt að kaupa United aftur

Sheik Jassim gæti komið að borðinu og reynt að kaupa United aftur
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Einn sá launahæsti í heimi fær samningi sínum í Sádí rift

Einn sá launahæsti í heimi fær samningi sínum í Sádí rift
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Tárvot Cassie Ventura lýsti því fyrir dómi hvernig Sean „Diddy“ Combs barði hana og niðurlægði

Tárvot Cassie Ventura lýsti því fyrir dómi hvernig Sean „Diddy“ Combs barði hana og niðurlægði

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.