
Kim Kardashian er að byrja með nýja raunveruleikaþætti þar sem fegurðarbloggarar keppast um að verða hluti af fegurðarteyminu hennar, eða „glam team“ eins og það er kallað. Hún býður öllum heiminum að sækja um að koma fram í raunveruleikaþættinum sem ber nafnið „Glam Masters“ og verður sýndur á Lifetime rásinni. Kim deildi fréttunum fyrst á Instagram og Twitter.
https://www.instagram.com/p/BTpMU_wl9DB/
Hún er sérstaklega að leita að beauty bloggurum, samkvæmt Lifetime síðunni.
„Fjórir heppnir bloggarar munu mæta hver öðrum í hverjum þætti af Glam Masters. Aðeins nokkrir munu komast í undanúrslit og að lokum úrslit þar sem einn mun standa uppi sem Glam Master. Næsta stóra nafnið í fegurðarheiminum gæti verið ÞÚ.“
Á umsókninni er spurt meðal annars um förðunarsögu umsækjandans, „snyrtivöruheimspeki“, fylgjendur á samfélagsmiðlum og persónuleika. Verðlaunin virðast vera staða sem „beauty director“ á Kardashian smáforritunum. Hérna getur þú sótt um.