fbpx
Laugardagur 21.mars 2026

Lady Gaga frestar Evróputúr vegna veikinda

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 18. september 2017 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lady Gaga hefur frestað Evrópulegg Joanne tónleikaferðalagsins, þar sem hún glímir við mikla líkamlega verki, en söngkonan var nýlega greind með vefjagigt.

Söngkonan skrifaði hjartnæm skilaboð á Twitter þar sem hún útskýrði að hún þyrfti tíma til að vinna bug á veikindum sínum. Jafnframt póstaði hún mynd af sér þar sem hún heldur á talnabandi.

„Ég hef alltaf verið heiðarleg hvað varðar andleg og líkamleg veikindi mín. Er búin að veramörg ár að reyna að sigrast á þeim. Þetta er flókið og erfitt að útskýra og við erum að reyna að komast að hvað veldur veikindunum.“

„Ég nota orðið „þjáist“ ekki til að fá samúð eða athygli og það veldur mér vonbrigðum að fólk hefur haldið því fram að ég sé dramatísk, sé að búa þetta til eða leika fórnarlamb til að komast hjá því að fara í tónleikaferðalag. Ef þú þekktir mig, þá myndir þú vita að slíkt er fjarri sannleikanum.

Ég er baráttukona. Ég nota orðið „þjáist“ ekki aðeins vegna þess að áverkar og krónískir verkir hafa breytt lífi mínu, heldur vegna þess að þeir valda því að ég á ekki eðlilegt líf. Þeir halda mér einnig frá því að gera það sem mér finnst skemmtilegast í heimi: koma fram fyrir aðdáendur mína.“

„Ég hlakka til að komast fljótlega aftur í tónleikaferðalag, en núna þarf ég að vera undir eftirliti lækna svo ég verði sterk aftur og geti haldið áfram að koma fram fyrir ykkur næstu 60 árin eða svo. Ég elska ykkur svo heitt.“

Tilkynningin kom stuttu eftir að Gaga þurfti að hætta við að koma fram í Brasilíu.

Evróputúrinn átti að hefjast 21. september í Barcelona á Spáni og enda 28. október í Köln í Þýskalandi. Umboðsmenn vinna nú að nýrri dagsetningu á Evróputúr, en áætlað er að seinni hluti Ameríkutúrsins verði samkvæmt áður auglýstri dagskrá.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Hefur þú tekið eftir svörtu blettunum á framrúðunni? – Þeir gegna mikilvægu hlutverki

Hefur þú tekið eftir svörtu blettunum á framrúðunni? – Þeir gegna mikilvægu hlutverki
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

„Við tökum ábyrgð á Íslandi“

„Við tökum ábyrgð á Íslandi“
Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Stakk sig til bana þegar hann reyndi að losa frosnar steikur í sundur

Stakk sig til bana þegar hann reyndi að losa frosnar steikur í sundur
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Rifist um nýjan einkarekinn skóla í Kópavogi – „Bæjarstjóri gekk til slíkra viðræðna án nokkurrar vitneskju eða heimildar bæjarráðs“

Rifist um nýjan einkarekinn skóla í Kópavogi – „Bæjarstjóri gekk til slíkra viðræðna án nokkurrar vitneskju eða heimildar bæjarráðs“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Bournemouth og United skildu jöfn – Sjáðu er Maguire fékk rautt

Bournemouth og United skildu jöfn – Sjáðu er Maguire fékk rautt
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Kom dómsalnum í opna skjöldu þegar hún játaði hvað hún gerði foreldrum sínum fyrir 15 árum

Kom dómsalnum í opna skjöldu þegar hún játaði hvað hún gerði foreldrum sínum fyrir 15 árum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.