fbpx
Mánudagur 12.maí 2025

Kim Kardashian drakk brjóstamjólk systur sinnar

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 18. október 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kim Kardashian hefur viðurkennt að hún hefur drukkið brjóstamjólk Kourtney systur sinnar í þeim tilgangi að reyna að ráða niðurlögum psoriasis.

Raunveruleikastjarnan hefur talað opinberlega um að hún glími við psoriasis, en hún talaði fyrst um það í viðtali árið 2010.
Síðan hefur hún talað reglulega um hvaða aðferðum hún hefur beitt við að halda sjúkdómnum og einkennum hans niðri. Móðir hennar, Kris Jenner, er líka með sjúkdóminn. „Ég hef reynt hefðbundnar meðferðir, en ég er alltaf tilbúin til að reyna nýjar aðferðir,“ segir Kim. „Einu sinni drakk ég meira að segja brjóstamjólk Kourtney!“
Kim sagði einnig frá að hún væri að mestu hætt að reyna að fela einkennin fyrir öðrum. „Ég hugsa bara að þetta sé minn galli og allir viti af honum, þannig að af hverju að hylja þau?“

 

Hvað er psoriasis?

Psoriasis er langvinnur, síendurtekinn húðsjúkdómur. Sjúkdómsferlið getur verið mjög mismunandi, allt frá vægum einkennum, þar sem sjúklingurinn gerir sér jafnvel ekki grein fyrir að um psoriasis sé að ræða, til tilfella sem geta haft félagslega örorku í för með sér og jafnvel verið beinlínis lífshættuleg.

Psoriasis er ekki smitandi en getur hins vegar verið ættgengt. að baki er mjög flókið erfðafræðilegt mynstur, sem menn hafa enn ekki áttað sig á, en þetta tengist einnig því að sjúkdómurinn virðist vera algengari hjá einstaklingum í ákveðnum vefjaflokkum.

Psoriasis getur herjað á alla aldurshópa, en er algengastur hjá einstaklingum á aldrinum 15-40 ára. Orðið psoriasis er dregið af gríska orðinu psora, sem þýðir kláði.

Heimild: Doktor.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Dularfulla njósnafyrirtækið sem hefur farið með himinskautum síðan Trump tók við völdum – Komið til að trufla, hræða og stundum til að drepa

Dularfulla njósnafyrirtækið sem hefur farið með himinskautum síðan Trump tók við völdum – Komið til að trufla, hræða og stundum til að drepa
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

,,Hann var sá eini sem reyndi að tala við mig, koma til mín og bjóða mér í mat“

,,Hann var sá eini sem reyndi að tala við mig, koma til mín og bjóða mér í mat“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

England: Tottenham og United töpuðu heima – Forest missteig sig aftur

England: Tottenham og United töpuðu heima – Forest missteig sig aftur
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

England: Tíu Chelsea-menn áttu ekkert í Newcastle

England: Tíu Chelsea-menn áttu ekkert í Newcastle
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Tveir sterkustu mennirnir slógust fyrir framan myndavélina: Yfirmaðurinn sagður vera brjálaður – Sjáðu myndbandið

Tveir sterkustu mennirnir slógust fyrir framan myndavélina: Yfirmaðurinn sagður vera brjálaður – Sjáðu myndbandið

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.