fbpx
Þriðjudagur 14.maí 2024

FRAMKVÆMDIR: Nýtt eldhús og nýtt herbergi – Náum við að klára fyrir jól?

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 14. nóvember 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú er komið um eitt og hálft ár síðan við fluttum inn í íbúðina okkar hér í Hafnarfirðinum og nú er loksins komið að því að gera upp eldhúsið.

Við gerðum upp baðherbergið í fyrra og höfum ekki gert neitt meira fyrir íbúðina en það. Eldhúsið var alltaf næst á dagskrá hjá okkur en það er auðvitað ekki alltaf hægt að gera allt í einu en við ákváðum að nú væri komið að þessu og ákváðum að skella okkur í þetta núna og planið er að ná að klára fyrir jól… eru það ekki týpískir Íslendingar?

Ég mun sýna allt í beinni á snappinu mínu THOREYGUNNARS svo endilega addið snappinu og fylgist með öllu ferlinu.

En ástandið á eldhúsinnréttingunni var orðið verulega slæmt svo við gátum hreinlega ekki beðið lengur með þessar framkvæmdir.

Skúffan sem var ekki lengur skúffa!

Eldhúsið verður þar sem við erum núna með borðstofuna og munum við rífa niður herbergi sem var einhvern tímann búið til innst inn af stofunni. Okkur hefur lengi dreymt um að hafa opið eldhús og ætlum nú að láta þann draum rætast. Þá verður eldhús – borðstofa – stofa eitt flæðandi rými sem gerir þetta allt meira að svona fjölskyldurými í íbúðinni.

Þetta rými verður herbergi

Herbergið þarna innst mun verða rifið niður og stofan stækkar

 

Borðstofan sem verður að nýja eldhúsinu

 

Nú er bara stóra spurningin… NÁUM VIÐ AÐ KLÁRA FYRIR JÓL?

Færslan birtist upphaflega á síðunni Fagurkerar.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Valur telur rembing varðandi Ryder í Vesturbæ hreinlega trufla – „Bauð öllum í bjór“

Valur telur rembing varðandi Ryder í Vesturbæ hreinlega trufla – „Bauð öllum í bjór“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Heldur því fram að þetta sé lélegasti leikmaður Bestu deildarinnar – „Hann getur ekki neitt“

Heldur því fram að þetta sé lélegasti leikmaður Bestu deildarinnar – „Hann getur ekki neitt“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Spila leik sinn við Keflavík inni í Boganum

Spila leik sinn við Keflavík inni í Boganum
Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Málið sem skekur Belgíu: Ungir drengir sagðir hafa hópnauðgað 14 ára stúlku

Málið sem skekur Belgíu: Ungir drengir sagðir hafa hópnauðgað 14 ára stúlku
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Dauðþreyttir á blindfullum túristum sem æla og míga upp um alla veggi

Dauðþreyttir á blindfullum túristum sem æla og míga upp um alla veggi
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Arsenal bætti 20 ára gamalt met í gær

Arsenal bætti 20 ára gamalt met í gær

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.