fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
Fréttir

Dæmdur fyrir að hóta nágranna með hnífi: „Helvítis barnaníðings ógeðið þitt“

Hlaut dóm árið 2014 fyrir kynferðisbrot – Sonur brotaþolans vitni að atvikinu

Auður Ösp
Fimmtudaginn 16. júní 2016 19:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Böðvar Guðmundsson var í dag dæmdur í 12 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir umferðarlagabrot og hótun. Var hann ákærður fyrir að hafa í janúar síðastliðnumhaldið hníf upp að hálsi manns og hótað honum lífláti. Fram kemur í dómnum að mennirnir tveir hafi átt í illdeilum um árabil og að þeirra deilur tengist refsidómi sem Böðvar hefur hlotið fyrir kynferðisbrot gegn ungum pilti.

Var dæmdur fyrir brot gegn barni

Böðvar, sem er 23 ára gamall var í mars 2014 dæmdur í 9 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir kynferðisbrot gegn ungum pilti sem býr við margþætta geðröskun. Fram kemur í dómnum að með hliðsjón af vottorði sálfræðings þyki rétt að skilorðsbinda fullnustu refsingarinnar. Kemur meðal annars fram að Böðvar sé greindur með ódæmigerða einhverfu og hafi sýnt afbrigðilega kynferðishegðun frá unga aldri, auk þess sem hann er sagður talinn í „hárri áhættu“ fyrir frekari kynferðislegri hegðun gegn börnum. Þá kemur fram að kynferðislegar hvatir hans séu áráttukenndar og tengist ungum börnum. Hann uppfylli greiningarviðmið fyrir barnagirnd og hafi greinilegt blæti fyrir bleyjum, snuðum og öðru, sem tengist ungabörnum.“

DV greindi frá því í nóvember síðastliðnum að Böðvar hefði haldið þessari hegðun áfram eftir að dómurinn féll; verið virkur á samfélagsmiðlum og á bland.is og reynt þar að komast í samband við fólk sem á ung börn í gegnum hina ýmsu hópa. Fram kemur í frétt DV að hann hefði þar spurt foreldra nærgöngulla spurninga, til dæmis um bleyju- og snuðnotkun barna, boðist þess að gefa bleyjur og margsinnis boðist til þess að passa börn. Þá hafi hann auglýst sig sem áhugaljósmyndara og boðið foreldrum upp á myndatökur.

Kom til orðaskipta

Fram kemur í dómi Héraðsdóms sem féll í dag að þann 25.janúar síðastliðinn hafi lögregla verið kvödd að Tröllaborgum í Reykjavík, þar sem Böðvar og annar maður eru báðir íbúar í sömu raðhúsalengju. Sagði maðurinn að komið hefði til orðaskipta á milli hans og Böðvars fyrir utan við húsið og kvaðst hann meðal annars hafa sagt við Böðvar: „Þegiðu barnaperrinn þinn.“

Sagði hann að við það hefði Böðvar tekið upp „Leatherman“ fjölnotaverkfæri, opnað hnífsblaðið, gengið ógnandi að sér og tekið í hann, lagt síðan hnífinn að hálsi hans og sagst ætla að drepa hann. Var Böðvar í kjölfarið handtekinn á heimili sínu.

Sagðist hafa verið með lyklakippu

Fyrir dómi sagðist Böðvar hafa verið að ganga inn götuna á leið heim þennan dag þegar hann hefði séð manninn vera að rispa bifreið sína með lykli. Komið hefði til orðaskipta á milli þeirra og hefði hann síðan ætlað að ganga inn í húsið þegar maðurinn hefði kallað til hans: „Helvítis barnaníðings ógeðið þitt.“ Sagði Böðvar að í kjölfarið hefði „fokið í sig.“ Hann hefði gengið að manninum, gripið um öxl hans með vinstri hendi en beint hnefa hægri handar upp að hálsi hans og sagt við hann að ef hann hætti þessu ekki myndi hann fara með málið lengra. Þá kannaðist hann við að hafa verið með hníf í slíðri við beltisstað, en kvaðst ekki hafa tekið hann upp. Hins vegar hefði hann verið með lyklakippu með húslyklum í hnefanum.

Átt í illdeilum

Fram kemur í dómnum að Böðvar hafi lýst því svo að hann og maðurinn hafi átt í illdeilum um árabil og sagðist hann hafa meðal annars komið að manninum þar sem hann var að losa felgurær á bifreið sinni, auk þess sem brotaþolinn hefði ítrekað lagt bifreið sinni þannig að hann lokaði bifreið Böðvars inni. Brotaþolinn lýsti því einnig fyrir dóminum að þeir tveir hefðu átt í illdeilum, og sagði þeir deilur meðal annars tengjast fréttum af því að Böðvar hefði hlotið refsidóm fyrir kynferðisbrot gegn barni.

Fyrir dómi greindi brotaþolinn meðal annars frá því að ungur sonur sinn hefði orðið vitni að atvikinu. Hafnaði hann því alfarið að Böðvar hefði verið með lykla í hnefanum og kvað engan vafa leika á því að um Leatherman hníf var að ræða, en hann kvaðst vera veiðimaður og þekkja slíka hnífa vel.

Voru skýringar Böðvars taldar misvísandi og ótrúverðugar fyrir dómi og kemur fram að háttsemi hans hafi verið til þess fallin að vekja ótta hjá brotaþolanum um líf sitt og heilsu. Þá hafi brotaþolinn jafnframt borið um að hafa óttast um líf sitt.

Þá var Böðvar einnig ákærður fyrir tvö umferðarlagabrot, annars vegar fyrir að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna og hins vegar fyrir að hafa ekið bifreið yfir leyfilegum hámarkshraða. Var hann sakfelldur fyrir þau brot. Við dómsuppkvaðningu var litið til þess að með ofangreindum brotum hefði Böðvar rofið skilorð dómsins frá því í mars 2014. Þótti hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Rauðblesótt tryppi gengur laust við þjóðveg 1 – Lögregla biður eigandann að gefa sig fram

Rauðblesótt tryppi gengur laust við þjóðveg 1 – Lögregla biður eigandann að gefa sig fram
Fréttir
Í gær

Plastbarkamálið: Getur Tómas starfað áfram sem læknir?

Plastbarkamálið: Getur Tómas starfað áfram sem læknir?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vendingar í sérstæðu sakamáli frá árinu 2014 – Ákærður fyrir að frelsissvipta og misþyrma konu

Vendingar í sérstæðu sakamáli frá árinu 2014 – Ákærður fyrir að frelsissvipta og misþyrma konu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur saumar að sægreifunum: „Þennan leik er löngu tímabært að jafna“

Dagur saumar að sægreifunum: „Þennan leik er löngu tímabært að jafna“