fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Eyjan
Fimmtudaginn 4. júní 2026 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú hafa fjórir af þeim 14 þingmönnum Sjálfstæðisflokksins sem náðu kjöri í síðustu kosningum sagt af sér og horfið af Alþingi. Þannig hefur tæplega 30 prósent þingflokksins valið að hverfa af vettvangi þingsins til annara verka. Þetta segir manni að Sjálfstæðisflokkurinn kann varla lengur að vera í stjórnarandstöðu og þolir ekki að una á Alþingi í valdalausri stjórnarandstöðu við sífellt nöldur og tafaleiki.

Orðið á götunni er að þrír öflugustu þingmenn flokksins hafi nú valið að hætta þingstörfum, þau Bjarni Benediktsson, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sem öll voru áberandi í ráðherrastöðum. Auk þeirra mun Vilhjálmur Árnason brátt segja af sér þingmennsku en hann er orðinn bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Í stað þeirra sem hætta koma frekar sviplausir varaþingmenn til þings. Ljóst er að staða Sjálfstæðisflokksins á Alþingi veikist verulega við þessar mannabreytingar.

Nú er svo komið að einungis þrír ráðherrar úr vinstri stjórn Katrínar Jakobsdóttur og Bjarna Benediktssonar eru eftir á Alþingi, þau Guðrún Hafsteinsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson og Sigurður Ingi Jóhannsson. Það er til marks um þau algeru umskipti sem urðu eftir síðustu kosningar og hvernig vinstri stjórn þeirra var gjörsamlega hafnað af kjósendum.

Talsverða athygli vakti í gær þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sagði af sér þingmennsku eftir að hafa verið í námsleyfi frá því í fyrrahaust. Ýmsir lýstu undrun og sumir þingmenn felldu jafnvel tár, rétt eins og stórslys og mannskaði hefði orðið. Þegar betur er að gáð þurfti þetta ekki að koma á óvart.

Orðið á götunni er að Áslaug Arna hafi sýnt að pólitískur metnaður hennar er nær takmarkalaus eins og kom fram þegar hún sóttist eftir að taka við formennsku í Sjálfstæðisflokknum í fyrra en tapaði kosningunni naumlega fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Allt eins var búist við því að Áslaug Arna gerði aðra tilraun til að ná kjöri sem formaður á næsta ári þegar landsfundur fer fram að nýju. Guðrúnu hefur ekki vegnað vel sem leiðtogi stjórnarandstöðunnar í þinginu en nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar gjörbreyta vígstöðu Guðrúnar til hins betra. Ekki verður litið fram hjá því að sem formaður Sjálfstæðisflokksins er Guðrún sigurvegari kosninganna og við henni verður ekki hróflað í bili að minnsta kosti. Þetta gerði Áslaug Arna sér ljóst og horfði þess vegna til þess með hryllingi að setjast inn á Alþingi til að taka þátt í valdalausri og nöldrandi stjórnarandstöðu. Lái henni hver sem vill!

Það komu fleiri sigurvegarar út úr þessum kosningum en Guðrún Hafsteinsdóttir. Hjá Sjálfstæðisflokki munar mest um Hildi Björnsdóttir, sem nú er orðin borgarstjóri og mun gera harða atlögu að því að halda þeirri stöðu næstu fjögur árin – hvað sem verður – og einnig Ásdísi Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi sem leiddi flokkinn þar í hreinan meirihluta.

Þessar þrjár konur, Guðrún, Hildur og Ásdís, munu trúlega allar ætla sér stór hlutverk innan Sjálfstæðisflokksins í landsmálum næstu árin og eru nú allar komnar fram fyrir Áslaugu Örnu í virðingarröðinni. Í ljósi þess var það skynsamleg ákvörðun hjá Áslaugu að víkja af vettvangi Alþingis og finna sér ný hlutverk í lífinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jón og Áslaug Arna endurbirta málverk Þrándar af sér í nasistabúningi: „Nú er öldin önnur“

Jón og Áslaug Arna endurbirta málverk Þrándar af sér í nasistabúningi: „Nú er öldin önnur“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hildur orðin borgarstjóri – Pétur óttast að breytingarnar séu til að koma burt Palestínufánanum

Hildur orðin borgarstjóri – Pétur óttast að breytingarnar séu til að koma burt Palestínufánanum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hannes Örn Blandon skrifar: Greinin sem fékkst ekki birt á Vísi

Hannes Örn Blandon skrifar: Greinin sem fékkst ekki birt á Vísi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Miðflokkurinn er ekki stjórntækur

Sigmundur Ernir skrifar: Miðflokkurinn er ekki stjórntækur