

Að syngja í rútuferð getur stytt stundir og skapað góða stemningu. En það getur líka verið helvíti á jörð fyrir þá sem ekki eru þannig stemmdir að vera fastir í söngrútu, kannski tímunum saman.
„Ég vill ekki vera andfélagsleg en söngur í rútuferðum er ekki beint minn smekkur,“ segir erlendur ferðamaður á samfélagsmiðlinum Reddit. Sá hún myndband af rútuferð á Íslandi þar sem var sungið og er nú tvístígandi hvort hún ætli að fara.
„Ég vil bara frið og ró,“ segir hún. „Ég vil fara í rútuferð þar sem ég get skoðað tímarit eða eitthvað og allir eru að hugsa um sig sjálfa.“
Þeir sem hafa verið í kórferðalögum þekkja það vel að syngja í rútu og það er einnig algengt í skólaferðalögum. Borið hefur á því að sungið sé í rútum ferðamanna, stundum þegar bílstjórinn sjálfur er í hressari kantinum.
Þetta er hins vegar ekki fyrri alla. Að sitja fastur á óvæntum, og ekki endilega góðum, kórtónleikum er hreinasta martröð fyrir marga. Þó enginn vilji vera sá sem stendur upp og stoppar sönginn.
„Kallið mig fýlupoka en ég myndi tryllast ef það myndi brjótast út söngur í rútunni og ég væri fastur í henni!,“ segir einn.
„Enginn söng í minni ferð og þú þarft ekki að syngja frekar en þú vilt,“ segir annar ferðamaður sem er frekar jákvæður út í söng í rútuferðum. „Ég mæli með að fólk sé með heyrnartól með sér.“
Þá bendir einn á að þetta sé ekki algengt á Íslandi. „Ef ég væri í rútu og fólk myndi byrja að syngja Baby Shark þá yrði ég brjálaður,“ segir hann.