

„Nova klúbbnum hf. hefur borist tilkynning frá Samkeppniseftirlitinu þar sem fram kemur að eftirlitið telji ekki tilefni til frekari rannsóknar eða íhlutunar vegna kaupa Nova á öllu hlutafé í Ofar hf. Samkeppniseftirlitið gerir því ekki athugasemdir við viðskiptin og lýkur þar með meðferð málsins af hálfu eftirlitsins. Undirritun samnings um kaup Nova á öllu hlutafé í Ofar fór fram 20. febrúar sl.
Eins og fram kom í fyrri tilkynningu félagsins nemur heildar virði kaupanna 4,4 ma.kr. Kaupin eru fjármögnuð með nýju lánsfé að fjárhæð 2,8 ma.kr. og handbæru fé að fjárhæð 1,6 ma.kr. Heildartekjur Ofar á árinu 2025 voru um 7,8 ma.kr., EBITDA félagins tæplega 620 m.kr. og rekstrarhagnaður um 360 m.kr. Áætlaður vöxtur Ofar á núverandi ári sem og áætluð jákvæð samlegðaráhrif á EBITDA samstæðu Nova klúbbsins eru samtals um 250 m.kr. á ársgrundvelli, þegar þau eru að fullu komin fram. Þannig verða áætluð heildaráhrif á EBITDA samstæðunnar um 870 m.kr., en gert er ráð fyrir að árlegar fjárfestingar samstæðunnar aukist um 60 m.kr. á ári. Viðskiptin munu þannig styrkja sjóðstreymi samstæðunnar verulega.
Gert ráð fyrir að lokauppgjör og frágangur viðskiptanna fari fram á næstu vikum, þegar öðrum skilyrðum kaupanna hefur verið fullnægt. Að kaupunum frágengnum mun Ofar hf. teljast hluti af samstæðu Nova klúbbsins hf. frá og með kaupsamningsdegi, 20. febrúar 2026.“