

Ótti við rúllustiga er ekki óalgengur hjá fólki. Það er að það óttast við að festast í stiganum og slasast eða deyja, jafn vel verða að hakki þegar stiginn dregur mann í gegnum ristina. Öðrum finnst slíkur ótti algjörlega ástæðulaus, rúllustigar séu mjög öruggir og stoppi sjálfkrafa ef eitthvað eitthvað festist í þeim. En óttinn við rúllustiga á í raun rétt á sér, eins og fertugur maður í Bandaríkjunum fékk að kynnast.
Steven McClusky, fertugur tveggja barna faðir frá bænum Somerville í Massachusetts fylki, var að fara í neðanjarðarlest á Davis stöðinni, nálægt Arlington, föstudagsmorguninn 27. febrúar. Hann tók rúllustiga niður en eins og sést í myndbandi öryggismyndavélar datt hann neðst í stiganum og festist.
Jakki McClusky festist í gangverki rúllustigans og togaði í hann. Hann lá fastur og reyndi að renna niður rennilásnum til þess að losa sig en krafturinn var of mikill. Fötin hans festust dýpra og dýpra ofan í vélina og hann gat ekki losað sig eins og segir í frétt Boston Globe um málið.
Annað fólk sem var á brautarstöðinni kom ekki samstundis til hjálpar. Í myndavélakerfinu sést að einn maður gengur í hina áttina eftir að hafa séð McClusky detta.
Að lokum var þrýstingurinn á hálsinn orðinn svo mikill að McClusky gat ekki andað og örmagnaðist. Hann lá fastur og hreyfingarlaus við enda stigans.
Þar lá hann í meira en 20 mínútur uns starfsmenn járnbrautarstöðvarinnar komu og stöðvuðu rúllustigann. Skömmu seinna komu sjúkraliðar á vettvang. McClusky var líflaus við botn stigans og með engan púls. Fötin hans höfðu vafist utan um hálsinn á honum og maginn á honum var ber.
Sjúkraliðarnir gáfu honum lyf og beittu endurlífgun. Loks byrjaði hann að anda á ný en ástand hans var mjög alvarlegt. Var hann fluttur á sjúkrahús án meðvitundar. McClusky var í dái á spítala í tíu daga. Þann 9. mars lést hann af áverkum sínum.
Shannen Flaherty, systir McClusky, sagði að bróðir sinn hefði barist við eiturlyfjafíkn á undanförnum árum. Hann hefði því ekki mátt við slysi eins og þessu.

„Hann reyndi sitt besta á hverjum degi til að vera til staðar fyrir fólkið sem hann elskaði,“ sagði hún. Steven McClusky var trésmiður að mennt og faðir tveggja ungra drengja. „Hann elskaði að búa hluti til og fékk ánægju af því að klára hluti sem hann byrjaði á. Fyrst og fremst var hann faðir tveggja sona sinna, Shayne og Steven, sem skiptu hann öllu máli.“
Brautarkerfi Masschusetts fylkis, MBTA, lýsti dauða McClusky sem hræðilegu slysi. Voru farþegar hvattir til þess að vera meðvitaðir um umhverfi sitt og hjálpa fólki í neyð.
„Það er mikilvægt að vita að hver sem er getur stöðvað rúllustiga þegar neyðartilvik kemur upp með því að ýta á rauða stopp takkann við neðri enda stigans,“ segir í tilkynningu MBTA. „Fólk ætti svo samstundis að hringja í neyðarlínuna. Starfsmenn MBTA bregðast fljótt við öllum neyðartilvikum og gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að hjálpa viðkomandi.“
Fjölskylda McClusky er hins vegar ekki sátt með MBTA og viðbrögðin. Hafa þau krafist rannsóknar á málinu og að MBTA verði gert að axla ábyrgð á dauðsfallinu. Málið er nú til rannsóknar hjá saksóknaraembættinu í Middlesex sýslu.