

Þrír voru fluttir á Landspítalann eftir að eftirför lauk á frárein frá Reykjanesbraut að Breiðholtsbraut í Reykjavík á ellefta tímanum í gærkvöldi. Eftirförinni lauk þegar ökufanturinn ók aftan á aðra bifreið.
Þetta kemur fram í tilkynningu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Segir að tilkynning hafi borist skömmu fyrir klukkan tíu um að bíl væri ekið á ofsahraða frá Suðurnesjum eftir Reykjanesbraut í átt að Hafnarfirði.
„Þar hófst eftirför embættisins, en fyrrnefndri bifreið var ekið eftir Reykjanesbraut um Hafnarfjörð, Garðabæ, Kópavog og Reykjavík, en þar lauk eftirförinni þegar ökufanturinn ók aftan á aðra bifreið,“ segir í tilkynningunni. „Við áreksturinn höfnuðu báðar bifreiðarnar utan vegar. Tveir voru í bifreiðinni, sem ekið var á og voru báðir fluttir á slysadeild, en ekki er talið að meiðsli þeirra séu alvarleg. Ökufanturinn, piltur undir tvítugu, var handtekinn á vettvangi og í framhaldinu fluttur á Landspítalann til aðhlynningar.“
Vísir greindi frá því gær að og birti myndbönd frá sjónarvottum af hasarnum. En tveir sjúkrabílar og dælubíll voru send á vettvang slysanna.
„Ekki þarf að fara mörgum orðum um alvarleikann að aka með þessum hætti, en ljóst er að ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu með aksturslagi sínu. Í Hafnarfirði ók hann jafnframt stuttlega inn í Áslandshverfið á meðan eftirförinni stóð. Lögreglumenn settu út tvær naglamottur, aðra í Hafnarfirði og hina í Garðabæ, þegar reynt var að stöðva ökufantinn,“ segir í tilkynningunni.