fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fréttir

Lögreglan í Reykjanesbæ skaut með rafbyssu á mann sem hafði hellt bensíni yfir sig – „Hann var allur í eldi og hlaupandi og öskrandi“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 18. maí 2026 11:41

Maðurinn hellti eldsneyti yfir sig.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning kl. 09:10 um einstakling í ójafnvægi í Reykjanesbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar.

„Þegar lögregla kom á vettvang var viðkomandi ógnandi, æstur og fór ekki að fyrirmælum lögreglunnar,“ segir í tilkynningunni.

Viðkomandi hafði hellt yfir sig bensíni og hótaði að kveikja í sér.  Lögregla beitti rafvarnarvopni til að yfirbuga viðkomandi, sem virtist ekki skila árangri.

„Viðkomandi nær þá að bera eld að sér með kveikjara sem hann hafði meðferðis. Hann var færður á sjúkrahús til aðhlynningar með brunasár víða,“ segir í tilkynningunni.

Í ábendingu sjónarvotts sem DV fékk segir að atvikið hafi átt sér stað við gamla kirkjugarðinn í Keflavík.

„Ég var að labba hjá gamla kirkjugarðinum í Keflavík og sá fullt af löggum og manni á nærbuxunum alveg óvopnaður en hélt á grill eldsneytis brúsa lögreglan byrjar að hóta honum með rafbyssu og svo skýtur hann eftir að hann hafi hélt eldsneyti yfir sig,“ segir sjónarvotturinn.

Sakar hann lögreglu um að hafa brugðist illa við þessu.

„Löggan stendur þarna eins og gungur reyna ekkert að bregðast við aðstæðunum að hann var allur í eldi og hlaupandi og öskrandi svo byrjar hann að rúlla sér og ennþá standa löggurnar og horfa bara á og gera ekkert meðan ég öskra á þær ekki standa bara þarna og gera ekki neitt,“ segir hann.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn