fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fréttir

Fjárhagur skiptinema í rúst vegna rispaðrar bílfelgu – „Eins og risastórt íslenskt tröll hafi kramið sálu mína“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 18. maí 2026 10:30

Hjólbarðar og bílfelgur reyndust ekki vera í tryggingunni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erlendur nemandi sem leigði bílaleigubíl er í miklum fjárhagskröggum vegna kröfu bílaleigunnar vegna rispa á bílfelgu. Nemandinn taldi sig vera fulltryggðan.

„Í alvörunni, mig langar að fara að gráta,“ segir nemandinn í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit. Ástæðan er sú að bílaleigan er að krefja hann um væna summu fyrir rispaða bílfelgu. Fjárhagurinn er farinn í skrúfuna vegna þessa.

„Ég er skiptinemi sem hef ekki mikið á milli handanna. Ég sparaði árum saman fyrir þessa ferð og leigði bíl af því að vefsíðan sagði að tryggðir þyrftu að borga 0 krónur fyrir allar týpur skemmda,“ segir neminn sem lenti í því að dekk sprakk. Segist hann hafa keypt nýtt dekk á 37 þúsund krónur og skipt um það sjálfur. „Við héldum að allt væri í lagi.“

Sjá einnig:

Fékk himinháa rukkun fyrir smábeyglu á bílaleigubíl – „Myndi ekki kalla þetta svindl en þetta er mjög ósanngjarnt“

En svo kom reikningurinn frá bílaleigunni, 192.951 krónur (1.400 dollarar) vegna nokkurra rispa á felgunni. Var nemanum bent á að samkvæmt smáa letrinu væru hjólbarðarnir og felgurnar ekki inni í tryggingunni.

„1.400 dollarar er leigan mín og matur fyrir nokkra mánuði,“ segir neminn. „Ég elskaði landslagið en þetta fjárhagslega högg finnst mér vera eins og risastórt íslenskt tröll hafi kramið sálu mína.“

Varar hann aðra við, að þegar bílaleigur segjast tryggja allt saman, þá þýði það ekki endilega allt.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn