fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Pressan

Bandaríkjamaðurinn sem óskaði eftir hæli á Ítalíu lýsir yfir sakleysi – „Ég myrti ekki eiginkonu mína“

Pressan
Miðvikudaginn 13. maí 2026 13:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður var nýlega tekinn með fölsuð persónuskilríki á flugvelli á Ítalíu. Samkvæmt skilríkjunum var þarna um að ræða Belga að nafni Lejeune Jean Luc Oliver, en í raun heitir maðurinn Lee Gilley og kemur frá Texas í Bandaríkjunum. Það sem meira er þá er Gilley á flótta þar sem hann er sakaður um að hafa myrt ólétta eiginkonu sína.

Lee hefur formlega óskað eftir hæli á Ítalíu þar sem hann segist í bráðri lífshættu. Hann hafi ranglega verið sakaður um morð og eigi yfir höfði sér dauðarefsingu. Hann var leiddur fyrir dóm í Mílan á mánudaginn þar sem hann mótmælti því að vera framseldur til Bandaríkjanna. „Ég samþykki það ekki,“ sagði Lee og ákvað svo óspurður að tjá sig um andlát eiginkonu sinnar.

„Eiginkona mín er dáin og þeir kenna mér ranglega um andlátið. Þess vegna hef ég misst trúna á réttarkerfið. Ég er saklaus. Ég myrti ekki eiginkonu mína. Minn eini glæpur var að flýja. Ég flúði til að forðast það að vera tekinn af lífi. Ég lagði mikið á mig til að sleppa og leita verndar á Ítalíu.“

Eiginkona Lees, Christa, fannst meðvitundarlaus á heimili hjónanna þann 7. október árið 2024 eftir að eiginmaður hennar hafði samband við Neyðarlínuna. Lee Gilley sagði eiginkonu sína hafa svipt sig lífi en krufning leiddi annað í ljós. Christa hafði látið lífið af völdum kyrkingar og var hún auk þess þunguð og komin átta vikur á leið. Lee var handtekinn þann 11. október en losnaði úr haldi nokkrum dögum síðar gegn greiðslu tryggingar. Honum var þó gert að ganga með ökklaband til að tryggja að hann léti sig ekki hverfa. Það var svo í byrjun mánaðar sem Lee klippti af sér ökklabandið og flúði fyrst til Kanada og þaðan til Ítalíu.

Bandaríkjadeild Interpol barst svo ábending í síðustu viku um að Lee hefði verið handtekinn á flugvellinum í Mílan með falsað vegabréf.

Lee sagði við ítalska dómarann á mánudaginn að hann hefði valið Ítalíu út af menningunni, ítalska lífsstílnum og til að tryggja að hann fengi sanngjarna málsmeðferð.

„Evrópa varð fyrir valinu því þar er réttlát málsmeðferð tryggð og ég valdi Ítalíu því hér er almenningur verulega á móti dauðarefsingunni.“

Hann þakkaði svo dómaranum í tvígang á ítölsku.

Aðstandendur Christu eru í öngum sínum yfir stöðunni. Samkvæmt lögmanni fjölskyldunnar var það út af fyrir sig þungt högg að Lee fengi að ganga laus gegn tryggingu. Það sé nú mikið áfall að hann hafi fengið tækifæri til að flýja og auk þess vettvang til að halda fram sakleysi sínu.

„Fjölskylda Christu fagnar réttarhöldum sem byggja á sannleikanum og sönnunargögnum sem munu tryggja réttlæti fyrir Christu og ófætt barn hennar.“

Ítalskur lögmaður Lee telur þó góðar líkur á að hann fái hæli þar í landi. Ekki sé mikil hætta á því að hann reyni aftur að flýja þar sem hann hefur engin ferðaskilríki. Dómari hefur ekki tekið ákvörðun um framsal.

Sjá einnig: Maður frá Texas flaug til Ítalíu og óskaði eftir hæli vegna yfirvofandi réttarmorðs – Er ákærður fyrir hrottalegt brot

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Svört spá – Mörg flugfélög munu fara á hausinn

Svört spá – Mörg flugfélög munu fara á hausinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Notaðu „7-orðabrelluna“ þegar þú getur ekki sofið – Virkar eins og bremsa á hugsanir

Notaðu „7-orðabrelluna“ þegar þú getur ekki sofið – Virkar eins og bremsa á hugsanir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svona er hægt að sjóða kartöflur hraðar

Svona er hægt að sjóða kartöflur hraðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sögulega stór víkingafjársjóður er kominn í leitirnar

Sögulega stór víkingafjársjóður er kominn í leitirnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Höfuð fjölskyldunnar átti sér dökka hlið – Dökkir skuggar fortíðarinnar

Höfuð fjölskyldunnar átti sér dökka hlið – Dökkir skuggar fortíðarinnar