
Fólk velur ýmist sturtu eða bað þegar kemur að hreinlæti, þeir sem hafa aðgang að bæði skiptast jafnvel á milli svona eftir dagavís eða öðru. Sérfræðingarinnar eru hins vegar á því að annað sé betra en hitt.
Dr. Primrose Freestone, klínískur örverufræðingur hjá Háskólanum í Leicester, hefur lagt orð í belg um hvort er betra.
„Þegar þú ferð í bað er vatninu ekki skipt út, svo þú ert bara að dreifa bakteríunum sem lifa á þér á mismunandi líkamshluta,“ sagði hún.
Með öðrum orðum, þetta langa, afslappandi bað sem þú hefur verið að dekra við þig í? Þú ert í raun að sitja í þinni eigin bakteríuskál.
Sturtur vinna hreinlætisumræðuna af þeirri einföldu ástæðu að vatnið heldur áfram að flæða, útskýrði Dr. Freestone.
„í sturtu er stöðugur vatnsstraumur sem skolar burt hugsanlegum bakteríum“ og bætir hún við að sturtan „fjarlægir fleiri húðörverur og dauðar húðfrumur en bað þar sem vatnið er stöðugur straumur og veitir því húðinni núning.“
Hún bætti við að morgunsturta sé sérstaklega gagnleg til að þvo burt svita eða bakteríur sem safnast upp af rúmfötunum þínum yfir nóttina.
Þrátt fyrir þetta er Dr. Freestone ekki á því að við eigum að henda baðkarinu á haugana. Baðkör hafa nokkra raunverulega kosti: þau hjálpa þér að slaka á, lina verki og sársauka, draga úr spennu og hjálpa til við að bæta blóðflæði. Vandamálið er að þau eru bara miklu meira nudd en skrúbb.
Tillaga hennar er einföld: farðu í bað, njóttu þess og hoppaðu svo í sturtu á eftir. Þannig nýtur þú vellíðunarávinningsins án þess að eyða restinni af deginum þakinn dreifðum bakteríum.

Það er önnur falin sýklahætta sem leynist á baðherbergisgólfinu þínu, og það er baðherbergismottan þín. Sérfræðingar hjá Plumbworld vöruðu við því að baðmottur séu „vanmetinn hlutur sem getur haldið í raka og bakteríur“, baðmottan dregur í sig vatn í hvert skipti sem þú stígur úr sturtunni eða baðinu og mygla getur myndast undir, sérstaklega á mottum með gúmmíbakhlið sem halda vatni á gólfinu.
Lausnin er að þvo baðmottuna vikulega á heitu kerfi og þurrka hana vel frekar en að skilja hana eftir flaka og raka á gólfinu.