fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
433Sport

Telur að það komi mikill hiti á Arnar ef hann heldur áfram að hundsa Viktor Bjarka

433
Þriðjudaginn 12. maí 2026 13:30

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, mun á morgun tilkynna hóp sinn fyrir komandi vináttuleiki A landsliðs karla, en íslenska liðið leikur gegn Japan í Tókýó 31. maí og gegn Argentínu 10. júní í Alabama, Bandaríkjunum

Leikurinn er Japan er utan landsleikjaglugga og áhugavert að sjá hvernig Arnari hefur tekist að leysa það.

Margir spá því að Viktor Bjarki Daðason framherji FCK komi inn í hópinn en ákall um slíkt hefur heyrst undanfarið. Viktor er 17 ára gamall og verið að gera vel í Danmörku.

„Viktor er búin að koma þessu FCK liði í bikarúrslit, hvernig ætlar Arnar Gunnlaugs að horfa framan í þjóðina og segja að Brynjólfur Willumsson verði í landsliðinu frekar en Viktor?,“ sagði Hjörvar Hafliðason í Dr. Football hlaðvarpinu í dag.

Arnar hefur frekar viljað sjá Viktor Bjarka stíga skrefin með yngri landsliðum frekar en að koma honum strax inn í A-landsliðið.

„Getur hann forðast það að velja hann?,“ spurði Hjörvar en sérfræðingar hans telja að Arnar geti ekki haldið áfram að sleppa því að velja Viktor.

„Er hann ekki að fara að viðurkenna það að Viktor eigi að heima það,“ sagði Andri Már Eggertsson um málið.

Hjörvar segir að það verði áhugavert að sjá hópinn en gerir ráð fyrir Viktori í honum.

„Ég veit ekki hvort að Arnar muni höndla hitann frá mér og Geiramönnum (Stuðningsmenn Fram) ef hann verður ekki í hópnum. Það verður áhugavert að sjá hópinn, hann hlýtur að vera í hóp hann Viktor.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Hetja helgarinnar í vandræðum í einkalífinu – Eiginkonan eyðir öllum ummerkjum um hjónaband þeirra

Hetja helgarinnar í vandræðum í einkalífinu – Eiginkonan eyðir öllum ummerkjum um hjónaband þeirra
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Þrjú stórlið á Englandi horfa á sama bakvörðinn

Þrjú stórlið á Englandi horfa á sama bakvörðinn
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Tottenham fékk aðeins stig á heimavelli – Gæti reynst mikilvægt

Tottenham fékk aðeins stig á heimavelli – Gæti reynst mikilvægt
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Setur allt á hliðina með djörfum myndum úr sumarfríinu

Setur allt á hliðina með djörfum myndum úr sumarfríinu
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Þarf að taka sér frí frá störfum eftir lífsnauðsynlega aðgerð

Þarf að taka sér frí frá störfum eftir lífsnauðsynlega aðgerð
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Stjarnan getur hefnt sín á KR á miðvikudag – Svona er dagskráin í Mjólkurbikarnum

Stjarnan getur hefnt sín á KR á miðvikudag – Svona er dagskráin í Mjólkurbikarnum