fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
433Sport

Chelsea á fullu að reyna að sannfæra Alonso – Fimm önnur nöfn á blaði

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 12. maí 2026 12:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Chelsea hefur hafið viðræður um mögulega ráðningu Xabi Alonso sem næsta knattspyrnustjóra félagsins samkvæmt enskum miðlum. Lundúnafélagið vill ganga frá nýjum stjóra áður en undirbúningur fyrir næsta tímabil hefst og Alonso er sagður efstur á óskalistanum.

Spánverjinn tók við Real Madrid síðasta sumar eftir frábæran árangur með Bayer Leverkusen þar sem hann vann þýska meistaratitilinn taplaus tímabilið 2023-24. Tími hans hjá Real Madrid varð þó stuttur en hann var rekinn í janúar eftir erfiða byrjun.

Chelsea hefur fylgst grannt með stöðu Alonso síðan þá og telur hann henta vel þeirri framtíðarsýn sem félagið vinnur eftir. Forráðamenn félagsins vilja fá þjálfara sem getur þróað unga leikmenn og byggt upp lið til lengri tíma.

Fleiri nöfn eru þó einnig til skoðunar hjá Chelsea. Þar á meðal eru Andoni Iraola, Marco Silva og Oliver Glasner auk fyrrum Chelsea-leikmannanna Cesc Fabregas og Filipe Luis.

Fabregas hefur vakið athygli fyrir störf sín hjá Como á Ítalíu en Filipe Luis náði góðum árangri með Flamengo í Brasilíu áður en hann lét af störfum fyrr á þessu ári.

Chelsea vonast til að nýr stjóri verði ráðinn fyrir miðjan júní.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ruben Amorim gæti verið að landa einu stærsta starfi í Evrópu

Ruben Amorim gæti verið að landa einu stærsta starfi í Evrópu
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Keane og Wright agndofa yfir vinnuaðstöðu sinni í Bandaríkjunum – „Þetta er magnað“

Keane og Wright agndofa yfir vinnuaðstöðu sinni í Bandaríkjunum – „Þetta er magnað“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

KR að selja Cosic til Noregs – Kaupverðið sagt vera í kringum 80 milljónir

KR að selja Cosic til Noregs – Kaupverðið sagt vera í kringum 80 milljónir
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Saumað að honum í beinni: Var rekinn fyrir dónaleg skilaboð til samstarfskvenna – „Ég hef tekið út refsingu mína“

Saumað að honum í beinni: Var rekinn fyrir dónaleg skilaboð til samstarfskvenna – „Ég hef tekið út refsingu mína“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Carrick byrjaður að skoða framherja Everton

Carrick byrjaður að skoða framherja Everton
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

PSG stórhuga og vilja einn besta leikmann Bayern

PSG stórhuga og vilja einn besta leikmann Bayern