fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fókus

Þráir að komast í kuldann á Íslandi – „Ég hata hita“

Fókus
Mánudaginn 11. maí 2026 17:30

Myndin er úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður frá Ástralíu segist vera mjög áhugasamur um að flytja til Íslands ekki síst til að komast í kaldara veðurfar en í heimalandinu. Er maðurinn greinilega orðinn leiður á lífi sínu í Ástralíu því hann segir það mikinn kost hversu langt í burtu Ísland sé.

Maðurinn, sem er á fertugsaldri, greinir frá þessum áhuga sínum á Reddit. Hann segir nánast allt við Ísland vekja áhuga sinn og það sé góður kostur að það sé svona langt frá Ástralíu. Segist maðurinn telja sig vera í ágætri stöðu til að hefja nýtt líf í nýju landi en líklega sé betra að byrja á því að heimsækja Ísland áður en lengra sé haldið.

Hann tekur það einnig sérstaklega fram hversu illa hann kunni við veðurfarið í Ástralíu:

„Ég hata hita. Ég hata hann svo mikið.“

Virðist hann því vera mjög áhugasamur um að komast í meiri kulda á Íslandi.

Segist maðurinn starfa við öryggisgæslu í Ástralíu en hafi ekki hugmynd um hvað hann gæti unnið við á Íslandi en sé mjög áhugasamur um að spreyta sig á íslenskum vinnumarkaði. Óskar hann eftir ráððleggingum og upplýsingum frá þeim sem flust hafa erlendis frá til Íslands.

Leyfið

Meðal þeirra sem veita svör er annar einstaklingur frá Ástralíu sem segist hafa búið á Íslandi í meira en áratug. Hann bendir á að það erfiðasta fyrir Ástrali á Íslandi sé að fá atvinnu- og dvalarleyfi.

Síðan taki fleiri erfiðleikar við, að læra íslensku, sæta mismunun á vinnumarkaði fyrir að vera útlendingur og eiga erfitt með að verða hluti af samfélaginu. Það að vera ekki með íslenskt nafn verði til þess að alltaf verði komið öðruvísi fram við mann. Segir hann Íslendinga einnig mjög trega til að tala íslensku við manneskju sem tali hana með hreim og hafi hana augljóslega ekki að móðurmáli. Skipt sé þá iðurlega yfir í ensku en kvartað samt mikið yfir að viðkomandi leggi sig ekki fram við að læra íslensku.

Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu sé einnig svipað og í Sydney og Melbourne.

Kostirnir við að búa á Íslandi séu hins vegar friðsældin og náttúrufegurðin. Skrifræði sé minna en í Ástralíu og lífið á Íslandi sé almennt einfaldara, afslappaðra og frjálsara. Segist viðkomandi hafa sætt sig við að verða alltaf útlendingur á Íslandi þótt hann sé kominn með íslenskan ríkisborgararétt. Segist hann hafa þurft að leggja mun meira á sig en innfæddir Íslendingar þurfi til að ná þeim árangri sem hann hafi náð í starfi. Ráðleggur hann þessum landa sínum að ef hann sé tilbúinn til að lifa við kerfi sem sé smíðað eingöngu fyrir innfædda og sætta sig við að hann verði aldrei einn af þeim þá geti hann byggt upp ágætis líf á Íslandi.

Annar einstaklingur sem flutti til Íslands erlendis frá ráðleggur hinum áhugasama Ástrala að hafa það í huga að það sé tvennt ólíkt að búa á Íslandi eða koma þangað í frí. Þar sem veturnir á Íslandi séu kaldir og dimmir sé vel til þess fundið fyrir Ástralann að koma til Íslands að vetri til í nokkrar vikur og sjá hvernig honum líki það.

Fleiri aðilar ítreka það við Ástralann að hafa það í huga að sé maður ekki frá EES-landi geti verið mjög erfitt að fá starf á Íslandi og helst þurfi maður þá að búa yfir sérfræðikunnáttu.

Einn aðili leggur til að Ástralinn skoði það frekar að flytja til Kanada þar sem það væri auðveldara fyrir hann og þar sé kaldara loftslag en í Ástralíu, að minnsta kosti í norðurhluta landsins. Segir Ástralinn það góða ábendingu. Honum lítist bara vel á Ísland en Kanada sé næsti valkostur.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Erna Hrönn tók stjórnina á eigin lífi: „Ég var komin á þann stað að mig langaði ekki að vera til lengur“

Erna Hrönn tók stjórnina á eigin lífi: „Ég var komin á þann stað að mig langaði ekki að vera til lengur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hætti skyndilega þátttöku í The White Lotus – Ástæðan var þessi ágreiningur

Hætti skyndilega þátttöku í The White Lotus – Ástæðan var þessi ágreiningur