fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Fréttir

Sandra stígur fram: „Ég hef líka séð afleiðingarnar þegar samfélagið bregst“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 8. maí 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Saga hinsegin fólks sýnir okkur hvað gerist þegar þögnin fær að ríkja og hversu mikilvægt það er að standa upp, tala skýrt og verja réttinn til að vera til,“ segir Sandra Hlín Guðmundsdóttir, formaður félags Náms- og starfsráðgjafa, í aðsendri grein á Vísi.

Sandra, sem jafnframt skipar 6. sætið á lista Viðreisnar í Reykjavík, segir mikilvægt að samfélagið standi vörð um hinsegin fræðslu og sýnileika hinsegin fólks og varar við því að þögn og fordómar geti haft alvarleg áhrif á börn og ungmenni.

Sandra hefur unnið með börnum og ungmennum í tuttugu ár og síðustu ellefu árin í framhaldsskóla. Í grein sinni segist hún hafa fundið hversu gríðarlega miklu máli það skiptir að ungmenni upplifi samstöðu, öryggi og viðurkenningu.

Þegar samfélagið bregst

„Samfélag sem hefur pláss fyrir okkur öll er samfélag sem við viljum tilheyra. Ég hef þar af leiðandi líka séð afleiðingarnar þegar samfélagið bregst. Þegar þögn, ótti eða vanþekking fá að ráða för. Þá getur skaðinn orðið óafturkræfur, þá verður jaðarsetningin raunveruleg og börn og ungmenni upplifa óöryggi í sínu daglega lífi.“

Sandra segir að ef jafnrétti væri náð værum við ekki að ræða hvort það sé „viðeigandi“ að flagga hinsegin fána eða sinna hinsegin fræðslu. Segir hún að ef raunverulegu jafnrétti væri náð myndin enginn taka slíka umræðu alvarlega.

„Einmitt þess vegna skiptir hinsegin fræðsla máli. Hún snýst ekki um að „ýta einhverju upp á fólk“ eins og sumir halda fram heldur snýst hún um að byggja upp skilning, draga úr fáfræði og tryggja að börn og ungmenni alist upp í samfélagi þar sem fjölbreytileiki er eðlilegur hluti af tilveru okkar. Hún snýst um að segja: hér er pláss fyrir þig.“

Hatrið fái ekki að sigra ástina

Sandra segir einnig að sýnileiki skipti máli. Þegar hinsegin fánanum er flaggað eða öðrum táknum séum við að sýna viðurkenningu og samstöðu í verki.

„Við erum ekki að traðka á réttindum annarra eða ráðast á þá, heldur stöndum við vörð um mannréttindi og minnum á að þau eiga við um okkur öll,“ segir Sandra og bætir við:

„Við megum aldrei leyfa hatri að sigra ástina. Við megum aldrei leyfa röddum sem ala á fordómum og útskúfun að verða ráðandi. Saga hinsegin fólks sýnir okkur hvað gerist þegar þögnin fær að ríkja og hversu mikilvægt það er að standa upp, tala skýrt og verja réttinn til að vera til.“

Ekki róttæk krafa heldur réttlæti

Sandra bendir á að tjáningarfrelsið sé mikilvægt en þó ekki skilyrðislaust.

„Þitt tjáningarfrelsi stoppar þegar það fer að grafa undan mannréttindum annarra eða kynda undir hatursorðræðu. Þetta er einfaldlega grundvallaratriði í lýðræðissamfélagi.

Hinsegin fræðsla á ekki að vera jaðarmál. Hún á að vera sjálfsagður hluti af öllu samfélaginu. Í skólum, á vinnustöðum og í opinberri umræðu. Hún er verkfæri til að byggja réttlátara, opnara og mannúðlegra samfélag.“

Sandra segir að lokum að Viðreisn hafi tekið skýra og mikilvæga afstöðu í þessum málaflokki. Það skipti máli að stjórnmálaflokkar stígi fram og standi með mannréttindum, ekki bara þegar það er þægilegt, heldur líka þegar það skiptir raunverulega máli.

„Við getum byggt samfélag þar sem enginn þarf að efast um rétt sinn til að vera til, elska og tilheyra. Það er ekki róttæk krafa. Það er einfaldlega réttlæti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Efnaleki í Hafnarfirði

Efnaleki í Hafnarfirði
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

„Þetta var óþægilegt og öryggisógn, maður upplifði ógn á öryggi barnanna“

„Þetta var óþægilegt og öryggisógn, maður upplifði ógn á öryggi barnanna“