fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Kvaratskhelia á blaði í London en hefur lítinn áhuga á að fara

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 8. maí 2026 09:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal er sagt hafa áhuga á að kaupa kantmanninn Khvicha Kvaratskhelia frá Paris Saint-Germain í sumar.

Vefmiðillinn Teamtalk segir að Arsenal sé stórhuga fyrir sumarið, sérstaklega vegna þeirra fjármuna sem félagið býr yfir eftir árangur sinn í Meistaradeildinni. Liðið er komið í úrslitaleik, þar sem það mætir einmitt PSG, og hefur það skilað yfir 120 milljónum punda í kassann.

Kvaratskhelia, sem gekk í raðir PSG frá Napoli fyrir einu og hálfu ári og átti risastóran þátt í að liðið varð Evrópumeistari í fyrra, er þó sagður mjög sáttur í París og gæti orðið erfitt að lokka hann þaðan.

Á þessari leiktíð hefur Kvaratskhelia skorað 18 mörk og lagt upp 10 til viðbótar. Mikel Arteta ku vilja bæta við stjörnuleikmanni í sóknarlínu sína í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt