fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 7. maí 2026 20:30

Myndin er úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kærunefnd húsamála hefur úrskurðað að leigusali geti haldið eftir hluta af tryggingu sem fyrrum leigjendur hans lögðu fram, vegna skemmda sem urðu á parketi íbúðar leigusalans eftir skó með pinnahælum. Líklegt er að upphæðin sem þetta kostaði leigjendurna sé töluvert hærri en verðmæti skónna sjálfra.

Leigusalinn er raunar kona en óljóst er hvort aðeins annar leigjandinn gekk í skóm með pinnahælum um íbúðina eða aðeins annar þeirra.

Krafðist leigusalinn þess að leigjendurnir yrðu látnir bera óskerta bótaábyrgð á skemmdunum á parketinu, alls um 600.000 krónur og hún gæti fengið þá upphæð með því að að halda eftir tryggingunni en leigjendurnir viðurkenndu ábyrgð upp á um 65.000 krónur.

Gerðu aðilar málsins ótímabundinn leigusamning um leigu á íbúðinni í mars 2022.

Í kröfu leigusalans kom fram að áður en leigutíminn hófst hafi farið fram ástandsskoðun á íbúðinni og niðurstaða hennar hafi verið sú að íbúðin væri í mjög góðu ástandi.

Leigusalinn sagðist hins vegar í mars 2025 hafa tekið eftir förum á gólfi eftir hælaskó og sent móður annars leigjandans tölvupóst þess efnis og beðið um að skór með pinnahælum yrðu ekki notaðir innandyra.

Parket

Leigusalinn sagði enn fremur að við lok leigutíma hafi sá aðili sem hafi framkvæmt ástandsskoðunina við upphaf leigutíma ekki verið laus og enginn getað leyst hann af. Henni hafi því verið ráðlagt símleiðis að taka sjálf myndir af íbúðinni sem hún hafi gert. Í ágúst 2025 hafi hún sent móður annars leigjandans kröfu í tryggingu vegna skemmda á parketi og svalalokun. Kostnaður við að gera við parketið hafi numið 535.680 krónum. Síðar í sama mánuði hafi kröfunni verið hafnað að því er varðaði parketið en samþykkt varðandi svalalokun.

Ástandsskoðun hafi síðan farið fram í september sem leigjendunum hafi verið boðið að vera viðstaddir. Sú skoðun hafi leitt í ljós að ekki hafi verið um eðlilegt slit á parketinu að ræða. Leigjendurnir hefðu ekki sannað að þeir bæru ekki ábyrgð á skemmdunum sem hefðu orðið á parketinu.

Ekki viðstödd

Leigjendurnir bentu á í sínum andsvörum að þeir hafi ekki verið viðstaddir þegar leigusalinn tók myndir í íbúðinni. Leigusalinn hafi verið búin að ákveða að fá skoðunarmann sem hún þekkti og væri starfsmaður parketverslunar, til að skoða gólfið og meta skemmdir. Sögðust leigjendurnir hafa farið fram á að vera viðstaddir þá skoðun en leigusalinn hafi ekki getað gefið skýr svör um það hvenær hann kæmi og það hafi ekki virst ákveðið þannig að hún hafi í raun aldrei gefið þeim tækifæri til að vera viðstaddir þá skoðun.

Eftir þá skoðun hafi það verið metið svo að það væru skóför eftir pinnahæla um alla íbúð og að það þyrfti að slípa og lakka parketið til að lagfæra skemmdir. Sögðust leigjendurnir hafa hafnað þeirri kröfu enda ekki samþykkt að slík för væru um alla íbúð, eins og til dæmis undir rúmum, stofusófa og öðrum húsgögnum. Það að fara fram á að þeir greiði kostnað við slípun og lökkun á allri íbúðinni væri ósanngjarnt og fengi leigusalinn þannig parketið í betra ástandi við lok leigutíma en það hafi verið í við upphaf leigutíma. Leigusalinn ætti ekki að hagnast á viðgerðum.

Bentu leigjendurnir á að ástandsskoðunin hafi farið fram sex vikum eftir að þeir fluttu út. Þeir hafi ekki getað verið viðstaddir og þar að auki hafi aðrir leigjendur verið fluttir inn sem gætu hafa borið ábyrgð á skemmdunum.

Vildi leigusalinn meina að þetta breytti engu. Parketið hafi verið skoðað við lok leigutímans og svo aftur í ástandsskoðuninni sex vikum síðar og í bæði skiptin hafi það komið skýrt fram að för eftir pinnahæla væru út um allt parketið.

Leigjendurnir andmæltu þessu og sögðu förin aðeins á afmörkuðum svæðum en ekki út um alla íbúð.

Helmingur

Eins og áður kom fram samþykktu leigjendurnir að leigusalinn myndi halda eftir um 65.000 krónum af tryggingunni vegna skemmda á svalalokun en leigusalinn krafðist tryggingarinnar í heild sinni sem var 560.000 krónur.

Kærunefnd húsamála segir í sinni niðurstöðu að samkvæmt úttektinni sem var gerð í september 2025, um 6 vikum eftir leigjendurnir fluttu út, hafi verið lítil göt eftir pinnahæla sjáanleg um alla íbúð. Hafi úttektaraðilinn haft til samanburðar myndir sem voru teknar við upphaf leigutíma. Hafi hann talið að ekki væri um eðlileg slit á gólfefni að ræða og mælt með því að parketið yrði slípað og lakkað upp á nýtt. Leigjendurnir hafi viðurkennt að skemmdir hafi orðið á gólfefni vegna pinnahæla með því að neita að för eftir pinnahælana væru um alla íbúð heldur eingöngu á afmörkuðum svæðum.

Hins vegar tekur nefndin undir það með leigjendunum að það sá ekki sanngjarnt að þeir greiði allan kostnað við slípun og lökkun á parketinu eins og það leggur sig. Horfa verði einnig til þess hversu langt var frá því að leigjendurnir fluttu út og þar til ástandsskoðunin fór fram. Í millitíðinni hefðu nýir leigjendur flutt inn í hana auk þess sem skoðunarmaður hafði til samanburðar aðeins myndir sem voru teknar við upphaf leigutíma en ekki lok hans. Verði því að líta svo á að óvissa sé um umfang skemmdanna sem leigjendurnir beri ábyrgð á. Þar að auki verði að horfa til þess að einungis lægi fyrir kostnaðarmat sem leigusalinn hafi útvegað einhliða.

Telur nefndin hæfilegt að leigjendurnir greiði 50 prósent af áætluðum viðgerðarkostnaði samkvæmt fyrirliggjandi mati eða 267.840 krónur sem fallist sé á að leigusalinn ráðstafi af tryggingarfénu. Það sem eftir standi af tryggingunni þurfi leigusalinn að endurgreiða leigjendunum með vöxtum og dráttarvöxtum.

Segja má því að skórnir með pinnahælunum hafi líklega kostað leigjendurna mun meira en verðið sem greitt var fyrir þá þegar þeir voru keyptir en mögulega hjálpa vextirnir og dráttarvextirnir til við að milda höggið.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Afkastageta Gosfélagsins verður um 70 milljónir lítra á ári

Afkastageta Gosfélagsins verður um 70 milljónir lítra á ári
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu

Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Bera fyrirtæki ábyrgð á hvíld starfsmanna sinna?: „Ofþreyta er talin valda milli 10-20% slysa“

Bera fyrirtæki ábyrgð á hvíld starfsmanna sinna?: „Ofþreyta er talin valda milli 10-20% slysa“
Fréttir
Í gær

Kópavogsbær segir eftirlit með niðurrifi sem fór úrskeiðis í samræmi við lög en sé til skoðunar – Þakplötur fóru inn um glugga hjá nágranna

Kópavogsbær segir eftirlit með niðurrifi sem fór úrskeiðis í samræmi við lög en sé til skoðunar – Þakplötur fóru inn um glugga hjá nágranna
Fréttir
Í gær

Edition-málið – Móðirin sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana svo í hjartað

Edition-málið – Móðirin sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana svo í hjartað