
Real Madrid hefur ákveðið að grípa til harðra viðurlaga eftir að upp úr sauð á æfingasvæði félagsins, þar sem Federico Valverde og Aurelien Tchouameni lenti saman og leiddi til þess að Valverde þurfti að fara á sjúkrahús.
Samkvæmt spænskum fjölmiðlum hófst ágreiningur milli leikmannanna á æfingu sem þróaðist út í rifrildi og síðar líkamlegt ofbeldi inni í búningsklefa.
Valverde er sagður hafa dottið og fengið skurð á höfuðið eftir að hafa lent á borði og þurfti að sauma hann á sjúkrahúsi.
Félagið hefur nú tilkynnt báðum leikmönnum að þeir muni sæta hörðustu mögulegu refsingu eftir atvikið, en rannsókn innan félagsins er í fullum gangi. Ekki kemur nánar fram með hvaða hætti þeim verður refsað.
Óljóst er hvort málið hafi áhrif á þátttöku þeirra í El Clasico gegn Barcelona um helgina, en spennan er mikil þar sem Barcelona getur tryggt sér Spánarmeistaratitilinn með sigri eða jafntefli.