

Hekla kveður Laugaveg með veglegri sumarsýningu laugardaginn 9. maí á milli kl. 12 og 16. Frumsýning á margverðlaunuðum Audi A6 e-tron og einstök tilboð af Audi Q4 S-line, Volkswagen ID.4 GTX og Skoda Elroq.
Á sýningunni verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla aldurshópa, grillaðar pylsur og ís frá Valdísi og K100 verður í beinni. Sirkus Íslands, Veltibíllinn og Blaðrarinn skemmta börnunum og nostalgían mun svífa yfir vötnum með myndum frá starfi Heklu í gegnum árin í takt við tónlist að hætti Andreu Jóns, eins og segir í tilkynningu.
Hekla mun í sumar flytja höfuðstöðvar sínar í Þorraholt, Garðabæ og lýkur þá yfir 60 ára sögu Heklu á Laugavegi. Flutningurinn í Þorraholt markar kaflaskil í sögu Heklu, en þar mun fyrirtækið búa yfir einni fullkomnustu bílamiðstöð landsins, sniðinni að kröfum framtíðarinnar. Miðstöðin er að hluta til neðanjarðar með meira en 500 bílastæðum. Í nýju bílamiðstöðinni sameinast starfsemi Heklu undir einu þaki: bílaumboð Heklu, Hekla notaðir bílar, Stilling vara- og aukahlutaverslun og Carglass framrúðuverkstæði.
„Það hefur verið okkur mikil ánægja að taka á móti viðskiptavinum okkar á Laugavegi í rúm 60 ár. Allt á sinn tíma og stað og í sumar munum við kveðja Laugaveginn og opna nýja bílamiðstöð í Þorraholti, Garðabæ þar sem aðstaðan verður með því besta sem völ er á.”

Hekla fagnar þessum tímamótum með tilboðum á sínum vinsælustu rafbílum og frumsýna að auki glæsilegan og margverðlaunaðan Audi A6 e-tron.
Audi A6 sameinar stílhreina hönnun, háþróaða tækni og einstök þægindi. Bíllinn er hannaður fyrir þá sem vilja gæði án málamiðlana, hvort sem er í daglegu lífi eða á ferðalagi. Drægni rafbílsins er allt að 712 km (samkvæmt WLTP), Quattro fjórhjóladrif og er bíllinn fáanlegur Avant eða Sportback.
Hekla býður viðskiptavini sína og fyrrum starfsfólk sérstaklega velkomið og hvetur vini og velunnara til þess að líta við á Laugavegi laugardaginn 9. maí, njóta stemningarinnar og kveðja höfuðstöðvar Heklu þar.


Meðal þeirra er Škoda Elroq, sem hlaut viðurkenninguna Bíll ársins í flokki rafdrifinna fjölskyldubíla hjá What Car? – Car of the Year Awards 2025. Bíllinn er fáanlegur fjórhjóladrifinn, með aukinni veghæð, allt að 536 km drægni (WLTP), fimm stjörnur í öryggisprófunum hjá Euro NCAP og rúmgott farangursrými.
Elroq er á tilboðsverði frá 6.290.000 kr. með styrk úr Orkusjóði.

Einnig verður Volkswagen ID.4 4Motion á sérkjörum. Bíllinn er fjórhjóladrifinn, með allt að 520 km drægni (WLTP) og rúmt farangursrými. ID.4 er nú á tilboðsverði frá 6.690.000 kr. með styrk úr Orkusjóði, sem er umtalsverð lækkun frá fyrra verði.

Þá býður Hekla upp á frábærlega búinn Audi Q4 S-line, með S-line útliti og innréttingu, rafdrifnum sportsætum með leðri, Sonos hljóðkerfi og panorama glerþaki. Bíllinn býður allt að 488 km drægni (WLTP) og hraðhleðslu sem nær 80% á um 28 mínútum.
Audi Q4 S-line býðst nú á frábærum kjörum frá 8.990.000 kr. með styrk úr Orkusjóði.
