fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fókus

Raunveruleikastjarna látin eftir sviplegt slys á Mallorca

Fókus
Fimmtudaginn 7. maí 2026 11:53

Jake Hall er látinn. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bretinn Jake Hall, sem varð þekktur úr raunveruleikaþáttunum The Only Way Is Essex, er látinn, 35 ára að aldri, eftir atvik í sumarhúsi á Mallorca á Spáni.

Spænsk yfirvöld rannsaka nú dauðsfallið en fyrstu vísbendingar benda til þess að um hörmulegt slys hafi verið að ræða.

Í frétt The Sun kemur fram að Hall hafi fundist látinn í blóðpolli í gærmorgun í húsinu sem hann hafði á leigu í bænum Santa Margalida á norðurhluta eyjarinnar.

Samkvæmt spænskum fjölmiðlum hafði hann hlotið alvarlega höfuðáverka sem talið er að hafi stafað af glerbrotum. Lögregla telur mögulegt að Hall hafi rekið höfuðið í eða fallið á glerhurð eftir næturlangt partýstand.

Heimildir herma að hann hafi verið úti að skemmta sér fram á morgun ásamt hópi vina áður en hópurinn hélt áfram samkvæmi í húsinu.

Rannsókn beinist nú að því hvort áfengi eða önnur vímuefni hafi átt þátt í atburðarásinni. Vitni hafa sagt rannsakendum að Hall hafi orðið æstur áður en slysið átti sér stað og að hávær læti hafi heyrst úr húsinu skömmu áður en lögregla kom á vettvang.

Fjórir menn og tvær konur sem dvöldu í húsinu hafa verið yfirheyrð vegna málsins, en enginn hefur verið handtekinn. Krufning á að fara fram í Palma, höfuðborg Mallorca, og stendur rannsókn spænsku borgaralögreglunnar enn yfir.

Talsmaður breska utanríkisráðuneytisins staðfesti við The Sun að fjölskylda Hall njóti stuðnings yfirvalda í Bretlandi.

Hall vakti fyrst athygli árið 2015 þegar hann kom fram í þáttunum sem eru yfirleitt kallaðir TOWIE. Hann starfaði síðar sem fyrirsæta og athafnamaður og stofnaði eigið tískumerki eftir að fyrra fyrirtæki hans fór í gjaldþrot.

Hann lætur eftir sig dóttur River, sem fæddist árið 2017. Móðir hennar er fyrirsætan og sjónvarpskonan Misse Beqiri, sem Hall átti í stormasömu sambandi við um árabil.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 1 viku

Vinahópur sló í gegn á sýningu stórmyndarinnar Michael – Bíóferðin hófst á sannri íslenskri hefð

Vinahópur sló í gegn á sýningu stórmyndarinnar Michael – Bíóferðin hófst á sannri íslenskri hefð
Fókus
Fyrir 1 viku

Húsnæði „kaupmannsins á horninu“ í Vesturbæ til sölu

Húsnæði „kaupmannsins á horninu“ í Vesturbæ til sölu
Fókus
Fyrir 1 viku

Svali fann ástina í örmum Birnu

Svali fann ástina í örmum Birnu
Fókus
Fyrir 1 viku

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends