

Manchester United er í langt komnum viðræðum um nýjan styrktarsamning sem gæti skilað félaginu verulegum tekjum á næstu árum.
Samkvæmt fréttum frá Laurie Whitwell hjá Athelti stefnir í að veðmálafyrirtækið Betway verði nýr æfingabúningastyrktaraðili félagsins. Um er að ræða margra ára samning sem gæti tekið gildi fyrir næsta tímabil.
Talið er að samningurinn verði yfir 18 milljónir punda á ári, sem myndi gera hann að einum stærsta samningi sinnar tegundar hjá félaginu.
United hefur undanfarin ár lagt mikla áherslu á að hámarka tekjur sínar utan vallar og þessi samningur myndi styrkja fjárhagsstöðu félagsins enn frekar.
Ef samningurinn gengur í gegn mun merki Betway birtast á æfingafatnaði leikmanna og þjálfarateymis United.