fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Eiginmaður grunaður um íkveikju og hrottalegt ofbeldi í garð konu sinnar – „I will fire this whore“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 6. maí 2026 12:00

Maðurinn er grunaður um að bera eld að heimili konunnar. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald, grunaður um alvarlega líkamsárás, heimilisofbeldi, ítrekuð brot gegn nálgunarbanni, íkveikju og fleira.

Landsréttur hefur úrskurðað gæsluvarðhald yfir erlendum manni til föstudagsins 15. maí næstkomandi en hann er grunaður um mjög alvarleg brot eins og kemur fram í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness frá 28. apríl.

Það er vegna gruns um alvarlega líkamsárás, heimilisofbeldi, ítrekuð stórfelld brot í nánu sambandi, ítrekuð brot gegn nálgunarbanni, íkveikju, hótanir og ofbeldis og hótana í garð opinberra starfsmanna, brota gegn lögreglumönnum og fíkniefnalagabrot.

Lögregla var kölluð til þann 6. febrúar árið 2024 vegna elds að íbúð sem eiginkona hins grunaða manns hafði til umráða. Hafði lögregla vísað eiginmanninum frá íbúðinni fyrr um daginn vegna skemmda á innanstokksmunum og íbúðinni sjálfri. Er hann grunaður um að hafa komið aftur og kveikt í íbúðinni.

Allslaus í leigubíl

Þar með er sögunni alls ekki lokið hvað varðar aðkomu lögreglu að málinu.

Þann 13. apríl árið 2024 hafði leigubílstjóri samband við lögregluna. En þá var eiginkonan, brotaþoli í málinu, allslaus í bílnum. Sagði hún að maðurinn hefði tekið af henni veskið og lykla og svo slegið hana í andlitið.

Þann 11. desember árið 2025 hafði konan samband við lögregluna og óskaði eftir aðstoð. Sagði hún manninn hafa hótað sér lífláti og að hann hefði sparkað í bakið á henni af miklu afli. Var maðurinn handtekinn í kjölfarið af tilkynningunni en þegar hann var færður á lögreglustöð hótaði hann að drepa lögreglumann.

Kveikti í vegabréfi sínu

Tveimur dögum seinna, þann 13. desember, barst lögreglu tilkynning um heimilisofbeldi. Þegar lögreglumenn komu að heimilinu neitaði maðurinn að opna hurðina og hleypti konunni ekki að til þess að opna hurðina. Þurftu lögreglumenn á endanum að sparka niður hurðina og handtaka manninn. En á meðan þessu stóð kveikti hann í vegabréfinu sínu.

Tveimur dögum seinna, þann 15. desember, óskaði konan eftir nálgunarbanni gegn manninum. Sagðist hún vera hrædd við hann, enda hafi hann beitt hana langvarandi ofbeldi, bæði andlegu og líkamlegu.

Öskrandi í fangaklefa

Degi seinna tók lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um brottvísun mannsins af heimilinu og til að sæta nálgunarbanni gagnvart konunni. En það dugði ekki til því að þann 4. janúar var maðurinn handtekinn eftir að hafa veist að konunni utandyra. Var hún með áverka víðs vegar á andliti og höfði eftir að hann hafði sparkað í höfuð hennar ítrekað.

Var hún flutt á sjúkrastofnun en hann handtekinn og fluttur í fangaklefa. Þegar lögreglumenn voru að fara inn í fangaklefann til að yfirheyra hann heyrðu þeir hann öskra: „I will
kill this wife. I will fire this whore.“

Hefur maðurinn verið vistaður í fangelsinu á Hólmsheiði en það hefur ekki dugað til. Er hann grunaður um að hafa í sex skipti hringt í konuna og þar með brotið nálgunarbannið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Brexit veldur Lundúnalögreglunni erfiðleikum við að hafa hendur í hári grunaðs morðingja Madeleine McCann

Brexit veldur Lundúnalögreglunni erfiðleikum við að hafa hendur í hári grunaðs morðingja Madeleine McCann
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Einar segir skipulagsstefnu höfuðborgarsvæðisins mannfjandsamlega – „Engum hollt að búa við ónóga birtu“

Einar segir skipulagsstefnu höfuðborgarsvæðisins mannfjandsamlega – „Engum hollt að búa við ónóga birtu“
Fréttir
Í gær

Þarf að sæta gæsluvarðhaldi vegna gruns um ævintýralegan fjölda brota eftir tvö ár af nær óslitinni brotahrinu

Þarf að sæta gæsluvarðhaldi vegna gruns um ævintýralegan fjölda brota eftir tvö ár af nær óslitinni brotahrinu
Fréttir
Í gær

Sakfelldur fyrir peningaþvætti af gáleysi eftir að tíu þúsund evrur fundust í skóm

Sakfelldur fyrir peningaþvætti af gáleysi eftir að tíu þúsund evrur fundust í skóm