fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Pressan

Þessi þrjú eldhústæki ættu aldrei að vera í sambandi þegar þau eru ekki í notkun – Geta skapað mikla eldhættu

Pressan
Sunnudaginn 10. maí 2026 20:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mörg eldhústæki standa uppi á borði og í hillum og eru tilbúin til notkunar öllum stundum. Örbylgjuofn, hraðsuðuketill og eldavélin eru alltaf tilbúin til notkunar en sum önnur eldhústæki ættu alls ekki að vera í sambandi nemar rétt þegar þau eru notuð.

Þetta segja bandarísk eldvarnamálayfirvöld. Í leiðbeiningum frá þeim kemur fram að tækin séu ekki endilega straumlaus þótt það sé slökkt á þeim. Þau geta notað „standbystraum“ þrátt fyrir að slökkt sé á þeim.

Bandaríska orkumálaráðuneytið segir að „standbyrafmagnsnotkun“ geti verið á bilinu 5 til 50% af rafmagnsnotkun heimilisins. En það sem mestu máli skiptir er auðvitað öryggið og því ráðleggja eldvarnaryfirvöld fólki að taka lítil eldhústæki úr sambandi þegar þau eru ekki í notkun.

Þrjú tæki eru sérstaklega nefnd til sögunnar í þessu samhengi:

Airfryer er eitt af hitamyndandi eldhústækjunum og er það mat bandarískra eldvarnaryfirvalda að ekki sé skynsamlegt að hafa meira en eitt hitamyndandi eldhústæki í sambandi í sömu innstungunni.

Kaffivélin er í sama flokki. Hiti, rafmagn og lítið eftirlit er slæm blanda og það er kannski ástæðan fyrir að matseld er ein algengasta ástæða eldsvoða.

Brauðristin sker sig úr því þar erum við með hitagjafa og brauðmylsnu. Er því mælt með að brauðristin sé tekin úr sambandi þegar hún er ekki í notkun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Höfuð fjölskyldunnar átti sér dökka hlið – Dökkir skuggar fortíðarinnar

Höfuð fjölskyldunnar átti sér dökka hlið – Dökkir skuggar fortíðarinnar
Pressan
Í gær

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti
Pressan
Í gær

Shoigu sagður ógn við Pútín

Shoigu sagður ógn við Pútín
Pressan
Í gær

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þeir sem sofa með svefnherbergisdyrnar lokaðar eiga þetta sameiginlegt

Þeir sem sofa með svefnherbergisdyrnar lokaðar eiga þetta sameiginlegt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þúsundir Bandaríkjamanna gætu misst vegabréfið vegna ógreiddra meðlaga

Þúsundir Bandaríkjamanna gætu misst vegabréfið vegna ógreiddra meðlaga
Pressan
Fyrir 2 dögum

Martröð á mæðradegi: Nýjar vendingar í einu umtalaðasta sakamáli Bandaríkjanna

Martröð á mæðradegi: Nýjar vendingar í einu umtalaðasta sakamáli Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 3 dögum

FBI-liðar uggandi yfir meintum hefndaraðgerðum Kash Patels vegna frétta um áfengisdrykkju hans

FBI-liðar uggandi yfir meintum hefndaraðgerðum Kash Patels vegna frétta um áfengisdrykkju hans