

Aðalfundur Landsvirkjunar samþykkti í dag tillögu stjórnar um 165 milljóna Bandaríkjadala arðgreiðslu í ríkissjóð, en á núverandi gengi er það um 20 milljarðar íslenskra króna. Samanlagður arður vegna rekstraráranna 2021-2025 nemur um 110 milljörðum króna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Stjórn fyrirtækisins er óbreytt. Formaður hennar er Brynja Baldursdóttir og aðrir stjórnarmenn eru Berglind Ásgeirsdóttir, Hörður Þórhallsson, Sigurður Magnús Garðarsson og Þórdís Ingadóttir. Varamenn í stjórn eru Elva Rakel Jónsdóttir, Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, Pétur Már Halldórsson, Styrkár Jafet Hendriksson og Stefanía Nindel.
Aðalfundurinn staðfesti skýrslu fráfarandi stjórnar og reikning fyrir liðið rekstrarár og samþykkti auk þess tillögu stjórnar um arðgreiðslur til eigenda. Arðgreiðslur Landsvirkjunar eru ákveðnar á grundvelli arðgreiðslustefnu fyrirtækisins. Deloitte var kosið endurskoðunarfyrirtæki Landsvirkjunar og var Auður Þórisdóttir endurskoðandi kjörin utanaðkomandi nefndarmaður í endurskoðunarnefnd fyrirtækisins.