

KAPP ehf. og Laxey undirrituðu samning á Sjávarútvegssýningunni í Barcelona á Spáni í dag um hönnun og forritun á heildstæðu kerfi sem sameinar vöktun vatnsgæða og stjórnun annars lykilbúnaðar, ásamt heildaryfirsýn yfir rekstur kerfisins. Markmiðið er að skapa öflugt og notendavænt umhverfi sem styður við öruggan, skilvirkan og gagnadrifinn rekstur eins og segir í tilkynningu.
Laxey hefur byggt upp metnaðarfulla starfsemi á sviði landeldis, þar sem áhersla er lögð á sjálfbærni, nýsköpun og ábyrga uppbyggingu. Með samningnum við KAPP er stigið mikilvægt skref til frekari samþættingar stýringar, vöktunar og yfirsýnar í rekstrinum.
KAPP sérhæfir sig í þjónustu og lausnum fyrir fisk- og kjúklingavinnslu, fiskeldi og matvöruverslanir. Félagið hefur á undanförnum misserum aukið enn frekar þjónustu sína við fiskeldisfyrirtæki, bæði á sviði hugbúnaðar og vélbúnaðarlausna, til að mæta vaxandi þörfum greinarinnar.
Ólafur Karl Sigurðarson, forstjóri KAPP, segir samstarfið við Laxey endurspegla þá þróun sem nú á sér stað innan fiskeldisgeirans.
„Við leggjum ríka áherslu á að tryggja framúrskarandi þjónustu fyrir fiskeldisgeirann, rétt eins og aðrar atvinnugreinar sem við þjónustum. Samstarfið við Laxey er mikilvægt skref í þeirri vegferð og fellur afar vel að okkar styrkleikum á sviði sjálfvirkni, stýringar og þróunar á lausnum fyrir tæknilega krefjandi starfsemi,“ segir Ólafur Karl.
„Við erum spennt að fá KAPP til liðs við okkur sem hafa mikla reynslu í fiskeldi og iðnstýringum. Stjórnkerfi stöðvarinnar er mjög mikilvægur þáttur í að hámarka framleiðni og gæði. Það er mikilvægt að hafa sterka samstarfsaðila í þeirri þróunarvinnu,“ segir Hallgrímur Steinsson, rekstrarstjóri Laxey.
Samstarfið endurspeglar vaxandi mikilvægi samþættra stýri- og upplýsingakerfa í landeldi, þar sem rauntímagögn, sjálfvirkni og skýr heildaryfirsýn skipta sífellt meira máli fyrir árangursríkan rekstur.