fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Vælandi út af öllu – verður Guðrúnu ýtt út á næsta landsfundi?

Eyjan
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Davíð heitinn Oddsson tjáði sig um stjórnarandstöðu Kvennalistans þegar hann var borgarstjóri og sagði m.a.: „Kvennalistinn lifir á bölsýninni og dregur upp dökkar myndir af öllu og er vælandi út af öllu eins og allt sé á heljarþröm.“

Þessi samantekt gæti eins átt við feril núverandi formanns og varaformanns Sjálfstæðisflokksins í stjórnarandstöðu frá því núverandi ríkisstjórn tók við völdum fyrir 16 mánuðum. Guðrún Hafsteinsdóttir hefur gert þau stóru mistök í stöðu sinni sem formaður Sjálfstæðisflokksins og leiðtogi stjórnarandstöðunnar að vera sínöldrandi og vælandi út af öllu eins og Kvennalistakonur gerðu í borgarstjóratíð Davíðs og hér er vísað til. Nöldur þeirra og væl gerði ekki annað en að styrkja þáverandi borgarstjórnarmeirihluta í sessi sem endaði með því að Sjálfstæðisflokkurinn vann risasigur í kosningunum árið 1990 og fékk stuðning 60 prósenta kjósenda og 10 borgarfulltrúa kjörna af 15. Sú var tíð. Ekkert bendir til þess að þeir dagar renni upp að nýju.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengst af verið stærsti flokkur landsins en mælist nú í þriðja sæti í öllum skoðanakönnunum. Sem forystuflokkur lagði hann áherslu á málefnalega umræðu og tefldi málstað sínum fram með rökum. Þannig náði hann árangri og fylgi, naut trausts. Nú er allt annað uppi á teningum. Ein af ástæðum fyrir dapurlegri stöðu flokksins er tvímælalaust sú að hann hefur vikið af vegi málefnalegrar stjórnmálabaráttu og fært sig yfir í kjánalega hegðun í þinginu sem einkennist af bölsýni og væli, tafaleikjum og jafnvel málþófi. Allt var þetta áður fyrir neðan virðingu Sjálfstæðisflokksins.

Margir flokksmenn hafa horft upp á þessa þróun daprir í bragði. Sumir hafa ákveðið að kveðja flokkinn eftir langa samleið og horfið yfir í Viðreisn þeir frjálslyndu eða til Miðflokksins þeir sem eru lengst til hægri í skoðunum og einangrunarsinnaðir. Núverandi flokksmenn eru áhyggjufullir og daprir. Þeir hafa beðið og vonað en eru nú farnir að velta fyrir sér öðrum lausnum.

Orðið á götunni er að Jens Garðar Helgason, varaformaður flokksins, væri meira en til í að spreyta sig á formennskunni gefist Guðrún upp og láti staðar numið. Það yrði reyndar enn verri staða fyrir flokkinn. Þótt Guðrúnu hafi ekki tekist að ná fylginu upp, samkvæmt skoðanakönnunum, eða staðið fyrir áhrifamikilli stjórnarandstöðu, þá er það útbreidd skoðun að hún sé þó mun líklegri til að ná sér á strik heldur en Jens Garðar gæti látið sig dreyma um. Ferill hans í þinginu er enn sem komið afar veikur, framkoman allt að því kjánaleg.

Áhrifamenn að tjaldabaki í flokknum hafa leitað nýrra forystulausna en ekki fundið. Enginn núverandi þingmanna flokksins eða sveitarstjórnarmanna er talinn hafa burði til að geta stigið fram og tekið öfluga forystu. Þannig stjórnmálamaður eða öflugur flokksmaður finnst ekki um þessar mundir. Hefur þó verið leitað með logandi ljósi.

Orðið á götunni er að ábyrgir flokksmenn sætta sig ekki við að flokkurinn detti niður á það plan sem Davíð Oddsson lýsti í sínum tíma þegar hann fjallaði um Kvennalistann: „… lifir á bölsýninni og dregur upp dökkar myndir af öllu og er vælandi út af öllu eins og allt sé á heljarþröm.“ Þeir vilja það ekki og munu ekki sætta sig við það.

Orðið á götunni er að með þessu áframhaldi muni Guðrún Hafsteinsdóttir fá harða andstöðu og mótframboð á næsta landsfundi árið 2027 sem verði undirbúin þannig að sitjandi formanni verði velt af stalli með afgerandi hætti. Ef til vill er mótframbjóðandinn fundinn því nú hefur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir lýst því yfir að hún muni taka sæti sitt að nýju á Alþingi í vor eftir að hún hefur lokið við það námskeið sem hún hefur setið í New York síðustu mánuði. Áslaug snýr nú úthvíld heim og til alls vís. Hún tapaði formannskosningunni fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur með minnsta hugsanlega mun á landsfundi flokksins í fyrra og gæti viljað rétta hlut sinn með nýju framboði – einkum og sér í lagi ef Guðrún heldur áfram þessari vonlausu vælustefnu í stjórnarandstöðunni sem engu skilar öðru en doða í flokknum.

Orðið á götunni er að Áslaug Arna og bandamenn hennar horfi nú á stöðu flokksins í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna. Ekkert bendir til að Sjálfstæðisflokkurinn nái markmiðum sínum í komandi kosningum, alla vega ekki í mikilvægustu kjördæmunum eins og í höfuðborginni og nágrenni hennar.

Einhverjir sjálfstæðismenn gætu hugsað sér gott til glóðarinnar eftir að úrslit kosninganna í maí liggja fyrir. Áslaug Arna, nýkomin af námskeiðinu, gæti orðið þeirra á meðal.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Opna dyrnar eða loka þeim?

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Opna dyrnar eða loka þeim?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Þýðir ekkert að æpa og góla hvert á annað – verðum að koma saman og við gerum það yfirleitt á miðjunni

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Þýðir ekkert að æpa og góla hvert á annað – verðum að koma saman og við gerum það yfirleitt á miðjunni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Afnemum virðisaukaskatt á hjálpartækjum

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Afnemum virðisaukaskatt á hjálpartækjum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ríkisstjórnin og Orka náttúrunnar gera sitt – boltinn er hjá SA – sporin hræða

Orðið á götunni: Ríkisstjórnin og Orka náttúrunnar gera sitt – boltinn er hjá SA – sporin hræða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson: Víðtækt samkomulag um að það þurfi að breyta stjórnarskránni

Davíð Þór Björgvinsson: Víðtækt samkomulag um að það þurfi að breyta stjórnarskránni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson: Baudenbacher veður villu vegar – Ef ESB og Ísland telja aðildarumsóknina í gildi þá er hún í gildi

Davíð Þór Björgvinsson: Baudenbacher veður villu vegar – Ef ESB og Ísland telja aðildarumsóknina í gildi þá er hún í gildi