
Rússar munu hafa komið með ákveðna miðlunartillögu í Íranstríðinu, að Rússar fari til Írans og fjarlægi þaðan birgðir af auðguðu úrani. Þessi tillaga mun fyrst hafa komið fram síðasta sumar en var aftur viðruð í vikunni.
„Rússland var tilbúið að taka við auðguðu úrani Írans og geyma á sínu yfirráðasvæði,“ mun talsmaður rússnesku ríkisstjórnarinnar, Dmitry Peskov, hafa sagt í samtali við indverska miðilinn India Today.
„Það hefði verið góð ákvörðun en því miður höfnuðu Bandaríkjamenn tillögunni“
Bandaríkin hafa réttlætt stríðið með vísan til þess að Íranir séu að auðga úran til að reyna að koma sér upp kjarnavopnum. Rússar hafa boðist til að taka við auðgaða úraninu sem yrði svo nýtt í orkuframleiðslu en Rússar telja þetta ákjósanlega lausn á átökunum. Þar með hefðu Íranir ekki auðgað úran og því ekki hægt að óttast að þjóðin komi sér upp kjarnavopnum á næstunni.