fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Sterling ekki að heilla – Framtíð hans í mikilli óvissu

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 09:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Framtíð Raheem Sterling hjá Feyenoord er sögð í óvissu þó hann hafi aðeins leikið sex leiki fyrir félagið.

Sterling samdi við hollenska liðið í febrúar eftir að samningi hans við Chelsea var rift. Hann hefur þó ekki náð að setja mark sitt á liðið.

Hollenskir fjölmiðlar hafa farið hörðum orðum um frammistöðu hans og telja hann vera kominn yfir sitt besta. Sumir sérfræðingar segja hann ekki passa inn í leikstíl þjálfarans Robin van Persie.

Sterling var þá á bekknum allan leikinn í 1-1 jafntefli gegn NEC Nijmegen. Van Persie hefur þó varið leikmanninn og bent á að hann hafi verið lengi frá keppni áður en hann kom til félagsins.

Samningur Sterling rennur út í sumar og óvíst er hvort hann verði áfram hjá Feyenoord eftir tímabilið.

Sterling hefur ekki verið í neinu hlutverki undanfarin tímabil. Hann var í frystikistunni hjá Chelsea áður en hann fór til Feyenoord og á síðustu leiktíð var hann á láni hjá Arsenal, þar sem hann náði sér aldrei á strik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Nokkuð óvænt orðaður við Manchester United

Nokkuð óvænt orðaður við Manchester United
433Sport
Fyrir 2 dögum

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana